Bygging raðhúss í Áshamri samþykkt

Enn er rætt um lóðina sunnan við Áshamar 1 en bæjarstjórn samþykkti á fimmtudaginn byggingu raðhúss á lóðinni með fjórum atkvæðum H- og E-lista gegn tveimur atkvæðum D-lista. Eyþór Harðarson D-lista sat hjá.

Fyrir fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 27. ágúst lá fyrir umsókn frá Júlíusi Hallgrímssyni á lóðum sunnan við Áshamar 1 til byggingar tveggja sex íbúða raðhúsa.

Þessu voru fulltrúar Sjálfstæðisflokks ekki sammála þar sem umrædd lóð er eina lóðin í Vestmannaeyjum sem skilgreind er sem fjölbýlishúsalóð. „Skipulagsmál eru viðkvæm og vandmeðfarin. Umrædd lóð er eina lóðin í Vestmannaeyjum sem er skilgreind á skipulagi sem fjölbýlishúsalóð. Lóðaframboð í Vestmannaeyjum er sannarlega takmörkuð auðlind og þurfa skipulagsyfirvöld að búa yfir framsýni m.t.t. húsnæðisþarfa framtíðarinnar. Undirrituð hafa í tvígang áður samþykkt fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs þar sem umsækjanda er neitað um breytingu á skipulagi í Áshamri úr fjöbýlishúsalóð í raðhúsalóð, síðast í apríl á þessu ári og greiðum gegn breytingunni.” Segir í bókun minnihlutans.

Þessu undruðu fulltrúar meirihlutans sig á og bókuðu eftirfarandi. „Við lýsum undrun yfir að fulltrúi D-lista vilji halda sig við eldra skipulag og hafa svæðið óbreytt í stað þess að leyfa byggingu raðhúsa, enda eru engar aðrar raðhúsalóðir til ráðstöfunar innan sveitarfélagsins.”

Frá bæjarstjórnarfundinum á fimmtudaginn.

Þá furðaði minnihlutinn sig á því að málið skyldi almennt hafa verið afgreitt á 290. fundi umhverfis- og skipulagsráðs þar sem málinu var frestað á 289. fundi. Þar sem skipaður hafi verið starfshópur um framtíðarskipulag tjaldsvæða á Þjóðhátíð sem átti að koma með tillögur að lausn þeirra, áður en farið væri í frekari skipulagsvinnu. „Þessi starfshópur hefur ekki skilað opinberri niðurstöðu, en málið afgreitt á fundi nr. 290 þrátt fyrir það og hafin vinna að skipulagsbreytingum á svæðinu. Liggi niðurstaða þess hóps fyrir, þá hefur hún í það minnsta ekki verið kynnt fyrir minnihlutanum.” Segir í bókun minnihlutans.

Sjá einnig: Jákvætt tekið í byggingu raðhúss í Áshamri

Nýjustu fréttir

Tap hjá ÍBV á útivelli gegn Grindavík/Njarðvík
Glódísi Dúnu hlakkar til að hefja nýjan kafla
Fiskaðist vel yfir nóttina
Eigi veldur sá er varar
Hvað gæti ESB gert fyrir Vestmannaeyjar?
Yfirráð Íslands yfir eigin sjávarauðlind
Eyjakonur sækja Grindavík/Njarðvík heim
Ný almannavarnalögn gjörbreytir öryggi Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.