ÍBV tekur á móti Fram í dag í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta. Fram vann nokkuð öruggan sigur í fyrsta leiknum í Reykjavík og leiðir einvígið 1:0 en þrjá sigurleiki þarf til að komast áfram. Eyjastúlkur léku illa lengst af í fyrsta leiknum og vilja vafalaust bæta fyrir slakan leik á heimavelli í dag.