Karlalið ÍBV í handbolta tekur á móti FH í dag, sunnudag klukkan 15:00. ÍBV hefur leikið þrjá leiki, hefur unnið tvo en tapað einum og er með fjögur stig. FH hefur hins vegar unnið einn, gert eitt jafntefli og tapað einum. Eyjamönnum mistókst að vinna sinn fyrsta heimaleik í úrvalsdeild í mörg ár þegar liðið tók á móti hinu Hafnarfjarðarliðinu, Haukum en ætli fyrsti heimasigurinn komi gegn FH í dag? Ef þú vilt komast að því, skaltu mæta í gamla salinn. Síðast var fullt út úr dyrum og stemmningin eftir því. Klukkan 12:30 tekur körfuboltalið ÍBV á móti Álftanesi, þannig að þeir leikir sem áttu að fara fram í gær, laugardag, verða á sama tíma í dag, sunnudag.