Mikið hefur mætt á starfsfólki Herjólfs allt frá því siglingar hófust í Landeyjahöfn enda flutti skipið um tíu þúsund farþega til og frá Eyjum í kringum þjóðhátíð. Mikið var að gera vikuna áður og fullbókað fyrir bíla vikuna eftir þjóðhátíð. Er ekkert lát á flutningunum. Guðmundur Nikulásson, hjá Eimskip innanlands, segir afgreiðslu á Herjólfi á nýju siglingaleiðinni hafa gengið ljómandi vel.