„Vestmannaeyjabær hefur nú hafið undirbúning að málsókn. Hann er tvíþættur, annars vegar það sem snýr að forkaupsrétti heimamanna og hins vegar erum við að láta skoða það fyrir okkur hvort Samherji, sem er stór eigandi að Síldarvinnslunni, hafi rofið 12% þakið á kvótaeign eins og það er skilgreint í lögum,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri, þegar hann var spurður um stöðuna eftir að BH hafnaði beiðni bæjarins um kaup á Bergey og Vestmanney og 5000 þorskígildum sem samið hefur verið um sölu á til Síldarvinnslunnar á Norðfirði.