�?jóðhátíðarlagið í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2
28. júlí, 2010
Eins og svo oft áður eru misjafnar skoðanir á þjóðhátíðarlagi ársins en KK var fenginn til að semja og leika þjóðhátíðarlagið í ár. Það gerði hann með laginu Viltu elska mig á morgun sem er ljúf ballaða með áherslum KK. Flestir eru þó sammála um að lagið sé fallegt enda situr það nú á toppi vinsældarlista Rásar 2 en nýr listi var kynntur á laugardaginn. Þetta telst mjög góður árangur enda hefur lagið aðeins verið í þrjár vikur inni á listanum.