�?ann 24. maí sl. brautskráðust á fimmta hundrað nemendur úr Tækniskólanum við hátíðlega athöfn í Eldborgarsal Hörpu. 61 útskrifaðist úr Byggingatækniskólinn, 29 úr Handverksskólanum, 47 úr Raftækniskólanum, 66 úr Skipstjórnar- og Véltækniskólinn, 53 úr Upplýsingatækniskólanum, 54 úr Tæknimenntaskólanum, 58 úr Flugskólanum, 24 úr Margmiðlunarskólanum, 54 úr Meistaraskólanum og 18 úr Vefskólanum. �?ó nokkrir Eyjamenn voru meðal útskriftarnema og hlutu fjórir þeirra viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Blaðamaður setti sig í samband við nokkra útskriftarnema og ræddi við þá um námið og framtíðina.
Guðný Charlotta Harðardóttir
Aldur: 20 ára.
Búseta: Er í skóla í Reykjavík yfir veturinn en kem svo til Vestmannaeyja yfir jól-, páska- og sumarfrí!
Í hverju varstu að útskrifast: �?g var að útskrifast af Hönnunar- og nýsköpunarbraut frá Tækniskólanum.
Hvað tók námið langan tíma: Námið var eins árs undirbúningsnám fyrir háskóla.
Af hverju valdir þú þetta nám, hafðir þú alltaf áhuga á því: �?g valdi þetta nám af því ég var búin að ætla mér að sækja um nám í arkitektúr við Listaháskólann en vantaði allan grunn og þess vegna valdi ég Tækniskólann því hann bauð upp á stutt og hnitmiðað nám. �?g hef alltaf haft áhuga á fallegum húsum og hef alltaf verið pínu forvitin að sjá hvernig fólk raðaði upp heima hjá sér en áhuginn fyrir að vilja starfa sem innanhúss arkitekt er tiltölulega nýtilkominn. Síðan þegar lengra leið á námið þá fór að vera smá ,,samkeppni�?� innan bekkjarins þegar nær dró möppuskilum inn í LHÍ sem dreif mann alveg áfram því það eru svo fáir sem komast inn. �?á var maður farin að drekka alveg í sig alla hönnunarsöguna, allar aðferðirnar sem manni var kennt til að skapa eitthvað og kannski það mikilvægasta, uppröðun og samsetningu.
Myndir þú mæla með Tækniskólanum: Já, ég myndi mæla með honum. Hann býður líka upp á svo fjölbreytt nám sem allir ættu að kynna sér. Mín reynsla er sú að kennslan sem ég fékk var ótrúlega persónuleg og manni leið stundum eins og maður væri að skapa og teikna eitthvað með jafningjum sínum. Kennslan var ekki þannig að kennarinn talaði allan tímann og við nemendurnir þurftum að þegja og skrifa niður glósur af því sem kennarinn sagði. Heldur vorum við sett í vinnustofur með mjög góðri vinnuaðstöðu og þar gat hver og einn hugsað um sitt verkefni en síðan gátum við líka verið öll saman og myndað góðar umræður tengt verkefninu.
Hvað tekur nú við: �?g sótti um í arkitektúrinn í LHÍ eins og ég hafði ákveðið eftir að hafa uppgötvað þetta nám á Háskóladeginum, var ein af fimmtán sem komst inn og var ég mjög ánægð með það að vita að ég hefði þann möguleika að geta stundað þetta nám, því það eru svo ótrúlega margir sem sækja um en svo fáir sem komast inn. En þar sem ég sótti líka um á hljóðfærakennslubraut í LHÍ og komst inn þar líka, þá ákvað ég að velja það nám frekar.