Hin árlega þrettándagleði ÍBV íþróttafélags verður haldin föstudaginn 3. janúar n.k. Umsókn um leyfi fyrir flugeldasýningu og brennu þennan dag, lá fyrir bæjarráði á fimmtudaginn.
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti. Samþykki þetta er háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi samkomustaðarins á kostnað skemmtanahalda ef þörf krefur.