Herjólfur mun sigla þrjár ferðir í Landeyjahöfn á morgun, annan dag páska. Í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að aðstæður í Landeyjahöfn séu góðar, utan þess að enn er unnið við dýpkun í og við höfnina. Af þeim sökum er nauðsynlegt að sigla samkvæmt flóðatöflu. Herjólfur siglir frá Eyjum klukkan 8:00, 17:00 og 19:15 en frá Landeyjahöfn klukkan 8:45, 18:15 og 20:45.