Til­boðstími lengd­ur til 8. sept­em­ber
Opn­un til­boða vegna smíði nýrr­ar Vest­manna­eyja­ferju hef­ur verið frestað til 8. sept­em­ber næst­kom­andi en hún átti að hefjast í dag.
Gild­is­tími til­boða hef­ur jafn­framt verið stytt­ur úr 20 vik­um í 18 vik­ur. Rík­is­kaup ann­ast útboðið fyr­ir hönd Vega­gerðar­inn­ar.
Alls hef­ur stofn­un­in svarað 129 fyr­ir­spurn­um sem henni hafa borist vegna útboðsins.
Í fyr­ir­spurn­um frá inn­lend­um og er­lend­um aðilum hafði verið óskað eft­ir því að útboðstím­inn yrði fram­lengd­ur um nokkr­ar vik­ur. Rík­is­kaup svöruðu fyr­ir­spurn­un­um fyrst þannig að ekki væri hægt að lengja frest­inn en virðist hafa snú­ist hug­ur.
Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá stofn­un­inni kem­ur það fram í lög­um um op­in­ber inn­kaup að lág­marks­frest­ur skuli gef­inn til að gera til­boð og einnig að tím­inn skuli vera næg­ur.
Ef beiðni kem­ur um seink­un á opn­un til­boða þarf að vera mál­efna­leg ástæða fyr­ir því að meiri tími sé gef­inn til til­boðsgerðar. Sem dæmi get­ur það tal­ist mál­efna­legt að stór hluti af til­boðsfresti falli á al­menn­an sum­ar­leyf­is­tíma.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.