Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Sjótækni ehf. bauð hundruðum milljóna króna lægra en kostnaðaráætlun í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar þegar tilboð voru opnuð í dag. Tilboðið er einnig langt undir öðrum tilboðum sem bárust í verkið
Alfsnes 06 24 IMG 5443 2
Álfsnesið við dýpkun við Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Sjótækni ehf. á Tálknafirði átti lægsta tilboðið í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar á árunum 2026 til 2029 þegar tilboð voru opnuð í dag, 10. febrúar. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á tæpa 1,19 milljarða króna og er það umtalsvert undir kostnaðaráætlun verkkaupa.

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í verkið, en gert er ráð fyrir að dýpka þurfi á bilinu 750 þúsund til 1,5 milljónir rúmmetra á samningstímanum. Fjögur tilboð bárust í verkið. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar nam rúmum 2,03 milljörðum króna, en þrjú tilboð voru yfir þeirri áætlun.

Tilboð sem bárust:

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik kr.
Björgun Sement ehf., Reykjavík
2.733.836.163
134,3
1.539.861.163
Jan De Nul, Belgía
2.310.358.950
113,5
1.116.383.950
Rohde Nielsen, Danmörk
2.124.108.263
104,4
930.133.263
Áætlaður verktakakostnaður
2.035.291.775
100,0
841.316.775
Sjótækni ehf., Tálknafirði
1.193.975.000
58,7
0

 

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.