Borun 1500 metra djúprar tilraunaholu í landi Kópsvatns í Hrunamannahreppi er lokið. Holan er með bestu lághitaholum sem boraðar hafa verið.
Holan er boruð fyrir Hitaveitu Flúða í framhaldi af því að Hrunamannahreppur fékk Íslenskar orkurannsóknir til að kortleggja jarðhita í sveitarfélaginu. Borunin gekk mjög vel og árangur er góður. Við fyrstu prófanir fengust um og yfir 70 lítrar á sekúndu af 110°C heitu vatni.