Ákveðið hefur verið að tjöldun í Herjólfsdal fari fram á morgun, miðvikudag klukkan 18:00. Sama fyrirkomulag verður á tjöldun og í fyrra, þ.e.a.s. talið verður niður og svo hlaupa allir af stað. „Það eru vinsamleg tilmæli frá þjóðhátíðarnefnd að starfsmenn í Herjólfsdal taki bara frá stæði fyrir sig og enga aðra,“ segir í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd.