Togari eða trillukarl?
Ragnar �?ór Jóhannsson var vart búinn að þrífa Kap VE eftir afspyrnu lélega loðnuvertíð og skila af sér grunnnótinni þegar hann var orðinn sígarettulaus. �?egar sagan byrjar er hann að labba austur með Strandveginum í hláku veðri í marsmánuði á meðan ósérhlífin austanáttin barði á honum. �?ó lætur hann ekkert á bera, enda borinn og barnfæddur Vestmannaeyingur og á erfitt með að standa uppréttur nema með vindinn í fanginu. Ragnar er ný búinn að kaupa sér nokkra sígarettupakka í Skýlinu, búinn að reykja þrjár á leiðinni og búinn að koma við á Volcano þar sem hann skellir í sig nokkrum ísköldum áður en hann færi í Ríkið.
Hann labbar inn í Vínbúðina með sjópokann á vinstri öxlinni og sígarettu í kjaftinum sem brunnin er niður að beini. Hann spítir sígarettufilternum út úr sér í steingráan steypulagðan öskubakkann fyrir utan Vínbúðina, fer inn og heilsar vinkonum sínum Ástu hans Tomma og Hrund hans Árna. �??Blessaður Raggi minn, mikið er gott að fá þig í land,�?? segja þær báðar í kór. Ragnar brosir eins og alltaf: �??Já stelpur, það er gott að vera kominn aftur í land eftir þessa loðnuvertíð, þvílík hörmung. En þetta er bara svona, lífið er upp og niður. Núna verður bara slappað af og kíkt í heimsókn til ykkar stelpnanna reglulega,�?? segir Ragnar og blikkar þær, skellir síðan upp úr og tekur kassa af Tuborg undir arminn. Straujar kortið og kyssir skvísurnar á sinnhvorn vangann af gömlum sið.
Ragnar labbar með kassann inní Valhöll þar sem hann á heima, leggur hann frá sér og opnar sér einn hlandvolgan bjór. Hann sest niður og opnar ferðatölvuna sína. Pikkar á lyklaborðið www.facebook.com. Fær sér sopa af bjórnum og sér síðan áskorun frá systur sinni Berglindi.
�?ar sem stendu orðrétt:
Berglind Jóhannsdóttir: �??�?g var að fá rosa góða hugmynd. �?ar sem vertíðin er nú að klárast hjá þér og við tekur bið fram að næstu vertíð þá ákvað ég að finna eitthvað handa þér að gera. �?g hef ákveðið að skora á litla bróður. �?g skora á þig að byrja í Crossfit í Hressó og reyna að ná stóru systur. �?ú getur auðveldlega fundið 3-4 klst í viku í þetta. Síðan væri ekki verra ef þú gætir skafið af þér nokkur kíló í leiðinni. Eða getur þú ekki tekið þessa áskorun?�?��??
Ragnar spýtir bjórnum yfir tölvuskjáinn. Reynir síðan að þurrka skjáinn með brúnum bréfpoka sem hann setti utan um vískýflösku sem hann keypti í einu stoppinu yfir vertíðina. Skrjáfið og viðloðunin í vaxkenndum pokanum hjálpar ekki mikið að þrífa bjórfroðuna, en það skiptir engu máli því áskorunin er en til staðar.
�??Nei andskotinn sjálfur, ég get ekki látið undan áskoruninni. Hún er búin að gera hana opinbera! �?að vita allir núna að Togarinn hafi skorast undan áskoruninni ef ég svara ekki.�??
Raggi fær sér annan sopa af bjórnum og tekur síðan stóran smók af sígarettunni. Glóðin færist um heilan sentímetra, alveg niður að beini með þessum djúpa andardrætti. Hann drepur í sígarettunni og stendur upp, andar frá sér reyknum, réttir upp hægri hendina hátt til himins og kallar af lífsins sálarkröftum: �??�?að skorar enginn á Togarann! �?g mun rústa þessari áskorun. �?ó svo að þolið mitt sé álíka ryðfallið og kynþokkinn á óhirtri náttbuxnamömmu sem vaxin er eins og blágóma, læt ég ekki undan.�?? En við þessa áreynslu byrjar Ragga að svima, hann sest niður, hóstar og nuddar á sér hökuna með vinstri hendinni og hugsar með sér: �??Mér veitir nú ekki af hreyfingunni og það er ekkert flottara en sjómaður í flottu líkamlegu formi. Ágúst Halldórsson og Daði �?lafsson vinir mínir tóku sig í gegn útá sjó á haustsíldinni í fyrra og í dag eru þeir með six pack og eru meira að segja báðir búnir að eignast börn.�??
�??Jú ég slæ til, þetta verður ekkert mál fyrir Togarann,�?? segir Raggi og stendur aftur upp. Kveikir sér í annari sígarettu, klæðir sig í svört kúrekastígvélin og leðurjakka, röltir síðan tvöhundruð metra niður í Axel �?. þar sem Maggi Steindórs tekur á móti honum.
�??Blessaður Maggi,�?? segir Raggi.
�??Uuuuu blessaður Raggi minn,�?? segir Maggi Steindórs og pírir annað augað og nuddar vinstri eyrnasnepilinn. �?etta gerði hann til þess að reyna að muna hvort að hann hafi nokkurn tímann séð Ragga í Axel �?. Tilkomumikil minnisaðferð sem hann tileinkaði sér þegar hann réri á Valdimari VE til að muna hversu margir togarakassar væru komnir í lestina á sjónum í gamla daga og til að muna hvenær Bergey ætti afmæli.
Raggi labbar að afgreiðsluborðinu setur báðar lúkurnar á afgreiðsluborðið og hallar sér ofan í hálsmálið á Magga og segir lágum rómi: �??Mig vantar íþróttaskó.�??
�??Ha?�?? segir Maggi steinhissa. Hann finnur bjórlyktina út úr Ragga og hugsar: �??�?að hlaut að vera. Hann var að klára vertíðina, hann hlýtur að vera mjúkur,�?? hallar sér aftur en sér þá alvarleikann í augunum á Ragga.
�??Uuuuu nnnnúúmer hvað?�?? stamar Maggi út úr sér.
Raggi réttir úr sér og gerir sig breiðan: �??�?að veit ég ekki, en ég nota númer fjörtíu og fimm í stígvélum, þessum appelsínugulu með stáltánni.�??
Maggi brosir og segir: �??Við finnum eitthvað út úr þessu vinur.�??
Hálftíma síðar labbar Raggi út úr Axel �?. með flotta Adidas íþróttaskó, í svörtum og hvítum Axel �?. poka.
Á meðan hann labbar upp í Valhöll hringir hann í einkaþjálfarann Jóhönnu Jóhanns sem svarar eftir þrjár hringingar: �??Jóhanna�?��??
�??Blessuð, Ragnar �?ór Jóhannsson hérna. �?g þarf að komast í einkaþjálfun. �?g ætla að vera kominn í form fyrir Sjómannadagshelgina.�??
Jóhanna hlær í símann og segir: �??Hver er þetta? �?g læt ekki plata mig svona. Er þetta eitthvað grín fyrir Árshátíð Hressó?�?? segir hún í algjörum hæðnistón.
Raggi dregur djúpt andann. �??Nei Jóhanna, þetta er ég í alvörunni, ég þarf hjálp. �?g ætla að vera kominn í form ævi minnar fyrir Sjómannadagshelgina í ár. �?að var verið að skora á mig og eins og þú þekkir mig þá læt ég ekki undan áskorun.�??
�??Ekkert mál, þú ert kominn á réttan stað. Hittu mig í Hressó eftir klukkutíma,�?? segir Jóhanna Jóhanns.
Ragnar heldur áfram að ganga og kemur loks heim til sín í Valhöll, fer síðan að hugsa: �??Íþróttaföt, íþróttaföt. Jú, ég á einhverjar stuttbuxur og bol sem ég fékk frá slökkviliðinu. Átti að nota þessi föt í ræktina en ég nótaði þessa garma sem náttföt.�?? Ragnar finnur fötin, setur þau í ÁTVR plastpoka ásamt nýju íþróttaskónum. Hann horfir stutta stund niður í hálfopinn ÁTVR pokann, réttir upp vísifingur og hugsar: �??�?g verð að gera þetta til að vera flottasti slökkviliðsmaður Íslands. �?ví gott líkamlegt þol fyrir slökkviliðsmann er jafn mikilvægt og fyrir gardínufyllibyttur að eiga Parkótín Forte á sunnudagsmorgni til að drepa niður þynnkuna og sektarkenndir gærkvöldsins.�?? Tekur síðan upp pokann og röltir niður í Hressó.
�?ar stendur Jóhanna Jóhanns og brosir niður til hans. �?ar sem hann stendur hálf móður í dyragættinni og á eftir tuttugu skref upp stigann í líkamsræktina. �??Fyrirgefðu þarna áðan í símanum, ég hélt að þetta væri eitthvað grín,�?? segir Jóhanna Jóhanns. Ragnar labbar rólega upp tröppurnar og hugsar: �??Djöfull eru þetta langar tröppur,�?? en brosir samt í gegnum tárin og segir: �??Já það eru ekki margir sem hafa trú á mér í líkamsræktinni.�??
�??En þú ert komin á réttan stað. �?g skal gera þig það flottan að fólk á eftir að halda að þú sért skipverji á Álsey Ve,�?? segir Jóhanna og fær sér sopa af Lýsi.
�??Labbaðu framhjá afgreiðsluborðinu því þar finnur þú karlaklefann. Klæddu þig og á meðan skrái ég þig og síðan mælum við þig, þyngd, hæð, fituprósentu og síðan byrjum við æfingarnar.�??
Ragnar gengur framhjá �?nnu Dóru sem hún situr við afgreiðsluborðið, hlæjandi í símann með bleikt tyggjó sem hún togar út úr sér reglulega og segir: �??�?ji Viggi, þú ert svo æðislegur.�??
Raggi hinsvegar klæðir sig í og fer þar á eftir í mælingu.
Ragnar mældist 25 mars 2014.
�?yngd: 83,6kg
Hæð: 180cm
Mitti: 83,8cm
Mjaðmir: 90cm
fituprósenta: 17%
Jóhanna rýnir í niðustöðurnar, pírir bæði augun og segir síðan: �??Ragnar, í fyrsta lagi þarft þú að breyta mataræðinu. �?g hef séð þig í Krónunni að versla inn. �?ú ert bara með tilbúnar pizzur, hamborgara og Pepsí í massavís.�??
Raggi grettir sig lítilega, enda veit hann uppá sig sökina og segir: �??AAaaa eeeee�?�.�??
�??Ekkert umla einhverja afsökun út úr þér Ragnar �?ór. �?að er bara ein tegund af homo sapiens sem má vera yfir tíu í fituprósentu, við köllum þessa tegund kvenmenn. Ert þú kona? �?g sá þig í dag labba Strandveginn með fullan kassa af Tuborg. En til hamingju Ragnar �?ór,�?? segir Jóhanna Jóhanns og tekur í æðabera og siggmikla hönd Ragga.
�??Með hvað?�?? segir Raggi hissa á svipinn.
�??�?ú ert hættur að drekka Tuborg og Pepsí.�??
Á sama tíma eru Kiddi Gogga og Frikki Sæbjörns að keyra upp Heiðarveginn framhjá Hressó á fluttningarbíl Kalla Kriss. �?egar Frikki skyndilega fær þessa hryllilegu gæsahúð.
�??Hvað var þetta?�?? spyr Kiddi Gogga áhyggjufullur um samstarfsfélaga sinn.
�??�?g veit það ekki Kiddi, en þetta er nákvæmlega sama tilfinning og ég fékk þegar Daddi Diskó og Höllin ákvað að skipta yfir í Coke.�??
�??Já, ekkert mál Jóhanna,�?? segir Ragnar og nuddar saman höndunum.
�??Jæja�?�. BYRJUM!�?? öskrar Raggi það hátt og af það miklum ákafa að tvær skvísur úr Forrest leikfimishópnum duttu af hlaupabrettinu og skullu í vegginn.
Fylgist með eftir tvær vikur þegar haldið verður áfram umfjölluninni um Ragnar �?ór og gengi hans í líkamsræktarátakinu. Nýjar tölur, nýjar myndir og ný markmið.
Áfram Raggi Togari!
Ágúst Halldórsson

Nýjustu fréttir

34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.