Vestmannaeyjabær varð rafmagnslaus í um 20 mínútur nú fyrir skömmu en rafmagn er komið á að nýju. Samkvæmt upplýsingum frá HS veitum er ekki er vitað hvað olli rafmagnsleysinu en tveir rafstrengir flytja rafmagn til Eyja ofan af landi. Straumur er kominn á annann strenginn og auk þess hafa díselvélar verið keyrðar í gang til að sjá bænum fyrir rafmagni.