Tvær ungar Eyjastúlkur, þær Birta Birgis og Sara Renee Griffin voru meðal þeirra tíu sem voru valin í úrslit Jólastjörnunnar 2013. Alls skráðu 350 krakkar sig til leiks í keppninni. Keppendurnir tíu komu fram fyrir dómnefnd í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 í gær en dómnefndina skipa þau Björgvin Halldórsson, Hulda Björk Garðarsdóttir, Gunnar Helgason og Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Allar tíu stúlkurnar sem komust í úrslit, munu koma fram á Jólatónleikum Björgvins í desember en sigurvegarinn fær stærra hlutverk.