Tveggja tíma akstur frá Reykjavík til Landeyjahafnar
30. júlí, 2010
Þeir sem hyggjast aka frá Reykjavík til Landeyjarhafnar þurfa að gera ráð fyrir 2 klukkustunda akstri ef aðstæður eru góðar. Hafa skal í huga að á leiðinni er ekið í gegnum þrjá þéttbýliskjarna þar sem hraði er takmarkaður miðað við það sem almennt gerist á leiðinni. Um Verslunarmannahelgina má án efa búast við mikilli umferð og getur þá jafnvel þurft að gera ráð fyrir lengri tíma.