Stýrihópur vegna þjóðhátíðar fundaði í vikunni en á fundinum var m.a. rætt um aðstöðu þjóðhátíðargesta í Landeyjahöfn. Aðstaðan er ekki tilbúin og því ljóst að vandamál gæti skapast við afgreiðslu skipsins og ekki síður fyrir þá fjölmörgu þjóðhátíðargesti sem hyggjast skilja bíla sína eftir við höfnina og halda þannig til Eyja. Nú er hins vegar unnið að því að útbúa viðbótarbílastæði sem eiga að rúma 2000 bíla.