Uppnám vegna meints lýðræðishalla
14. júní, 2025
Frá fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í vikunni var athyglisverð umræða um meintan lýðræðishalla innan stjórnsýslu bæjarins á þessu kjörtímabili. Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðsflokksins hóf umræðuna undir liðnum “Kosning í ráð, nefndir og stjórnir” en þar var nýtt bæjarráð skipað og eru aðalmenn áfram Njáll Ragnarsson formaður, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir varaformaður og Eyþór Harðarson.

Alvarlegt umhugsunarefni

Lauk Hildur máli sínu á að leggja fram bókun frá bæjarfulltrúum D lista. Þar segir:

„Á síðustu 5 árum hefur orðið raunveruleg skerðing á lýðræði við stjórnsýslu Vestmannaeyjabæjar. Merki þess sjást svart á hvítu ef borinn er saman fjöldi funda og fjöldi mála sem ráð sveitarfélagsins taka fyrir. Á árunum 2019 og 2024 var milli 22% og 34% fækkun mála sem eru að meðaltali tekin fyrir á hverjum fundi fræðslu-, fjölskyldu- og tómstunda-, umhverfis- og skipulags-, og framkvæmda- og hafnarráðs á sama tíma og fundum ráðanna hefur einnig farið fækkandi. Þannig hefur heildarfjöldi mála þessara ráða farið verulega fækkandi ef borin eru saman árin 2019 og 2024 eða úr um 450 málum í um 250 mál. Í ljósi vaxandi íbúafjölda, hás framkvæmdastigs og vaxandi krafa af hálfu ríkisins við stjórn og umsýslu sveitarfélagsins eru umsvif stjórnsýslunnar síst minni í dag en árið 2019.

Á sama tímabili hefur málafjöldi bæjarráðs farið vaxandi. Í bæjarráði sitja færri kjörnir fulltrúar en í almennum ráðum sveitarfélagsins og því ljóst að færri aðilar koma að ákvarðanatöku um stjórn sveitarfélagsins. Aukning málafjölda bæjarráðs skýrir þó ekki alfarið þá miklu fækkun sem orðið hefur á málafjölda annarra ráða og því umhugsunarefni hvað skýrir þessa breytingu og hvar fjöldi ákvarðana eru teknar.

Þessi staðreynd ætti að vera æðstu embættismönnum sveitarfélagsins og meirihluta bæjarstjórnar alvarlegt umhugsunarefni og viljum við hvetja meirihluta bæjarstjórnar til að spyrna föstum fótum við þessari varhugaverðu og andlýðræðislegu þróun og vinna gegn samþjöppun valds á fárra hendur.”

Ljóst var að þessi yfirferð Hildar olli titringi hjá meirihlutanum og óskaði bæjarstjóri fljótlega eftir fundarhléi og við því varð forseti bæjarstjórnar.

Starfsmönnum sveitarfélagsins verið falin fullnaðarafgreiðsla mála

Að loknu fundarhléi lögðu bæjarfulltrúar E og H lista fram eftirfarandi bókun:

„Meirihlutinn vísar því á bug að þær breytingar sem gerðar voru á samþykktum sveitarfélagsins árið 2020 hafi falið í sér skerðingu á lýðræði við stjórnsýslu Vestmannaeyjabæjar eins og minnihlutinn heldur fram í bókun sinni, enda samþykktu allir bæjarfulltrúar samhljóða þessar breytingar á sínum tíma. Með þeim breytingum hefur starfsmönnum sveitarfélagsins verið falin fullnaðarafgreiðsla mála sem heyra m.a. undir umhverfis- og skipulagsráð og fjölskyldu- og tómstundaráð.

Á tímabilinu voru til viðbótar innleidd farsældarlög sem drógu verulega úr málafjölda fjölskyldu- og tómstundaráðs. Svo viljum við benda minnihlutanum á það að það ráð sem er með sterkast umboð frá íbúum í Vestmannaeyjum er bæjarráð þar sem allir fulltrúar eru kjörnir bæjarfulltrúar.”

Skýrir ekki að fækkun heildarmálafjölda sé um 200 mál

Að endingu bókuðu bæjarfulltrúar D listans:

Þrátt fyrir þessar stjórnsýslubreytingar skýrir það ekki að fækkun heildarmálafjölda er um 200 mál, fundum allra ráða hefur fækkað og meðaltalsmálafjöldi allra ráða eru færri að undanskildu bæjarráði þar sem málum hefur fjölgað að meðaltali. Það er afar eðlilegt að kjörnir fulltrúar skoði þessar upplýsingar með gagnrýnum hætti og tryggi að ekki sé vegið að lýðræði eða eðlilegum stjórnsýsluháttum.

Fleira kom fram í umræðunum á fundinum. Horfa má á upptöku frá umræðunum um þetta mál hér að neðan. Umræðan hefst á 26 mínútu.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.