Boðað er til útifundar við Landsbankann á Selfossi á morgun 18. desember klukkan 12:30
Frummælendur verða Elín Björg Jónsdóttir formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi, Bjarni Harðarson bóksali og fyrrverandi alþingismaður og Sigríður Jónsdóttir kennari og ljóðskáld.
Fólk er hvatt til að mæta og mótmæla aðgerðaleysi stjórnvalda, siðleysi útrásarvíkinganna og skuldabyrðum sem séu vegna þessa lagðar á herðar almennings.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst