Bæjarfulltrúinn og grunnskólakennarinn Jórunn Einarsdóttir mun taka sæti í Útsvarsliði Vestmannaeyja í ár. Auk Jórunnar eru þeir Ágúst Örn Gíslason og Sveinn Waage í liðinu en báðir hafa þeir verið í liði Vestmannaeyja áður. Spurningaþátturinn Útsvar hefur verið á dagskrá RÚV undanfarin ár en gengi Eyjamanna hefur ekki verið sem allra best í þáttunum, hafa í tvígang komist í 2. umferð og þar af í annað skiptið fyrir að vera með hæstu stig tapliða.