Útlitið er ekki gott fyrir lunda- og kríuvarp í ár. Síendurtekinn afkomubrestur hefur orðið síðustu sumur vegna breytinga á lífríkinu í sjónum og hefur umhverfisráðherra biðlað til landeigenda að takmarka eða fella niður eggjatöku og hlunnindaveiðar í sumar vegna lélegs ástands margra sjófuglastofna.
„Þetta byrjar frekar endasleppt og maður er nú hálfkvíðinn fyrir sumrinu,“ segir Erpur Snær Hansen, líffræðingur í Vestmannaeyjum.