Setja þarf upp merkingar við Sprönguna í Vestmannaeyjum til að vara fólk við hættum sem geta falist í því að spranga. Þetta er mat Adolfs Þórsson formanns Björgunarfélags Vestmannaeyja eftir að stúlka fótbrotnaði á svæðinu um síðustu helgi. Adolf segir að vegna þess að svæðið sé opið og hver sem er geti komið og sprangað þá sé eðlilegt að setja upp einhverjar varúðarmerkingar eða leiðbeiningar um hvernig eigi að spranga.