Vél Flugfélags Íslands varð veðurteppt í Vestmannaeyjum í nótt. Vélin lenti síðdegis á flugvellinum í Eyjum en þegar fara átti af stað á ný, snjóaði svo duglega að hvorki náðist að hreinsa flugbrautina, né að afísa vélina. Hún var því í Eyjum í nótt og verður flogið síðar í dag til Reykjavíkur, án farþega.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst