Vestmannaeyjabær hefur nú fengið heimild til að koma upp aðstöðu fyrir smábáta í Landeyjahöfn. Ekki var fyrirhuguð aðstaða fyrir smábáta í höfninni sem opnar 21. júlí en Vestmannaeyjabær leggur til bryggju og landgang og greiðir fyrir frágang. Aðstaðan er því eign Vestmannaeyjabæjar og lítur stjórn bæjarins. Bryggjan er hugsuð sem neyðarbryggja fyrir smábáta og skemmtibáta, en fyrst og fremst sem aðkoma fyrir björunarbát Björgunarfélagsins í Eyjum.