Almennur borgarafundur um málefni Landeyjahafnar verður haldinn í Höllinni á morgun, fimmtudaginn 18. apríl klukkan 18:00. Horfum til framtíðar er yfirskrift fundarins en að fundinum stendur áhugahópur um samgöngur við Vestmannaeyjar. Fundarstjórar eru Guðmundur Þ. B. Ólafsson og Friðrik Björgvinsson en fjölmargir aðilar flytja stutt erindi á fundinum, auk þess sem ályktun hópsins er borin undir fundinn.