Vöruviðskipti við Bretland tryggð

Ísland, Noregur, Liechtenstein og Bretland hafa sammælst um að bráðabirgðasamningur um vöruviðskipti taki gildi hafi fríverslunarsamningur ekki verið undirritaður fyrir áramót svo óbreytt viðskiptakjör verði áfram tryggð. Góður gangur er í fríverslunarviðræðunum og er stefnt að því að ljúka þeim á tilsettum tíma.

Fríverslunarviðræður Íslands og hinna EES EFTA-ríkjanna, Noregs og Liechtenstein, við Bretland standa nú yfir og ganga vel, þrátt fyrir að hafa hafist seinna en ráð fyrir gert vegna kórónuveirufaraldursins. Hafa samninganefndir hist reglulega á rafrænum fundum með það að markmiði að ljúka viðræðum tímanlega svo að nýr fríverslunarsamningur geti tekið gildi um áramótin þegar svonefndu aðlögunartímabili lýkur.

Þrátt fyrir góðan gang í fríverslunarviðræðunum hafa stjórnvöld í ríkjunum fjórum nú samþykkt að verði fríverslunarsamningur ekki undirritaður fyrir áramót taki gildi bráðabirgðasamningur um vöruviðskipti uns fríverslunarsamningurinn er tilbúinn. Þann samning, sem var upphaflega gerður í apríl 2019, stóð til að nota ef útganga Bretlands úr ESB hefði verið án samnings. Óháð þessu munu fríverslunarviðræður halda áfram af fullum krafti.

„Þannig er um að ræða tvær mögulegar sviðsmyndir: Annað hvort tekur gildi um áramótin nýr fríverslunarsamningur eða bráðabirgðasamningur um vöruviðskipti. Þótt gangurinn sé góður í fríverslunarviðræðunum er mikilvægt að við höfum tryggt óbreytt viðskiptakjör fyrir íslensk fyrirtæki við Bretland óháð því hvort þeim ljúki á tilsettum tíma,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Bráðabirgðasamningurinn tryggir að útflutningur til Bretlands lúti ekki hærri tollum en í dag. Markmið samningsins er þannig að viðhalda gildandi kjörum þar til samið hefur verið um nýjan og viðameiri fríverslunarsamning á milli ríkjanna.

Enn er óvíst um niðurstöðu fríverslunarviðræðna Bretlands og Evrópusambandsins þó báðir aðilar stefni að samningi. Bæði Bretar og EFTA-ríkin innan EES eru þó sammála um að viðræður þeirra á milli haldi óhikað áfram þótt að viðræður Evrópusambandsins og Bretlands skili ekki árangri.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.