Í dag eru liðin 100 ár frá stofnun Íþróttafélagsins Þórs. Stofnfundurinn var haldinn í húsinu Borg sem stóð við Heimagötu og stofnfélagar voru 18 talsins. Tilgangur félagsins var að stuðla að iðkun íþrótta og glæða áhuga á þeim, eins og segir í fyrstu lögum þess. Félagið var bindindisfélag og varðaði brottekstri ef útaf var brugðið. Fyrsti formaður félagsins var Georg Gíslason, afi Gogga heitins í Klöpp. Georg var formaður félagsins til ársins 1933 með smáhléi á milli.