Skerðing á þorskkvóta um 3900 tonn milli ára

Þegar rýnt er í tölur yfir úthlutað aflamark eftir heimahöfnum má sjá að heildar samdráttur í Vestmannaeyjum er á milli ára er 1.28% af heildarafla og í þorskígíldistonnum er skerðingin um 3.582.473 tonn. 2007-2008 2006-2007 Þorskur 8.071.188 11.995.992 Ýsa 13.419.473 12.590.154 Ufsi 10.304.155 10.732.704 Karfi 7.301.908 6.782.434 […]
Kári frá í einn til tvo mánuði

Kári Kristjánsson línumaður Hauka, missir að líkindum af upphafi Íslandsmótsins í handknattleik. Kári meiddist í leik með Haukum á æfingamóti á Selfossi um liðna helgi. Kári brákaðist á fæti, nánar tiltekið á utanverðri ristinni. Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, tjáði Morgunblaðinu í gær að Kári yrði væntanlega frá æfingum í 1-2 mánuði. Á meðan munu Haukar […]
Vestmannaeyjar fá næst mest úthlutað af kvóta

Vestmannaeyjar er næst kvótahæsta heimahöfnin á landinu í þorskígildistonnum samkvæmt nýjustu úthlutun. Aðeins Reykjavík fær fleiri þorskígildistonn eða 15,2% af heildarúthlutun fiskveiðiársins sem hefst 1. september. Til Vestmannaeyja koma um 12% þorskígildistonn sem úthlutað er og í þriðja sæti er Grindavík með 10,82% en þessar þrjár heimahafnir skera sig nokkuð úr. (meira…)
Tvílembum nú með Huginn VE.

Jæja þá erum við byrjaðir að tvílemba með strákunum á Huginn VE. Við græjuðum okkur í nótt og köstuðum svo um sjö í morgun. Sverrir Rúnars fór yfir um borð í Huginn til að sýna strákunum handbrögðin enda hafa þeir aldrei partrollað áður. Allt þetta gekk fínt og erum við með trollið okkar úti núna […]
Vel til fundið að leggja áherslu á uppbyggingu rannsókna- og þróunarstarfs

eyjar.net sendi út spurningar á nokkra bæjar- og sveitastjóra sem stýra sveitafélögum sem verða fyrir barðinu á niðurskurði aflaheimilda á þorski. Hér fyrir neðan birtum við svör Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra á Höfn í Hornafirði. Hvernig líst þér á þær tillögur sem að bæjarráð Vestmannaeyja leggur fram sem mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar á veiðiheimildum á þorski?Mér […]