Eitt af því besta sem gert hefur verið í Vestmannaeyjum á síðustu árum var að gerast aðili að Hitaveitu Suðurnesja.

Eyjar.net heldur áfram að heyra í valinkunnum Eyjamönnum varðandi hvaða möguleika þeir sjá í stöðunni með söluhagnaðinn af Hitaveitu Suðurnesja. Að þessu sinni heyrðum við í Sigurði Jónssyni fyrrverandi bæjarfulltrúa í Vestmannaeyjum og núverandi sveitastjóra í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Spurningin er sú sama og áður:Ef þú værir bæjarstjórnin hvað myndirðu leggja til að gert yrði við […]

Reyndi að bora út læsingu um miðjan dag

Um miðjan dag á laugardag var maður handtekinn þegar hann reyndi að komast inn í íbúð í Áshamri með því að bora út læsinguna. Taldi hann sig vera í rétti við athæfi sitt enda ætti sonur hans íbúðina en leigjandi íbúðarinnar hafði ekki greitt leiguna og vildi hann leigjandann út. Þar sem maðurinn fór ekki […]

Ungir ökumenn óábyrgir í umferðinni

Eins og áður hefur komið fram valt bifreið inn á Týsvöllinn að morgni laugardags. Eigandi bifreiðarinnar ók henni samkvæmt vitnum og var hann töluvert undir áhrifum áfengis. Eigandinn var aðeins 17 ára og hafði verið með ökuréttindi í heila tíu daga. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin skemmdist töluvert. (meira…)

�?gnaði gestum með hnífi og braut rúðu í vitlausu húsi

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast í síðustu viku. Meðal annars var lögreglan kölluð út rétt um miðnótt laugardags en þá hafði maður ógnað fólki með hnífi og brotið rúðu. Gaf maðurinn þá ástæðu að gestir á heimili hans hafi neitað að fara út og hafi það endað með átökum á milli hans […]

Opna skoska 2007 hjá golfklúbbnum

Í gær sunnudag var keppt um The Schofield quake sem að eyjavinurinn Stephan Schofield gaf gólfklúbbnum í tilefni mótsins. Félagar í GV hafa farið í golfferðir til Skotlands í tvo skipti og nú var ákveðið að flytja skosku stemmninguna til eyja.   GV fékk sekkjapípuleikarann Edwart Wighton frá Dundee til að koma til eyja og […]

Berglind Ómarsdóttir klæðskeri ársins

Um helgina var haldið í Laugadalshöllinni Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara innan Samtaka iðnaðarins – The Icelandic Skills Competition. Berglind Ómarsdóttir klæðskeri fékk eftirfarandi viðurkenningar: Klæðskeri ársins 2007 Var í tískuteymi ársins 2007 Viðurkenningu úr minningarsjóði Indriða Guðmundssonar klæðskera. Það má segja að Berglind hafi fengið fullt hús að þessu sinni, og er þetta mikil viðurkenning […]

Gunnar Heiðar fær ekki háa einkunn eftir fyrsta leikinn

Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék í fyrsta sinn sem norska liðinu Vålerenga í gær er liðið sigraði Start, 3:2, á heimavelli á Ullevaal í Ósló. Árni Gautur Arason var í marki Vålerenga en Jóhannes Harðarson var í leikmannahópi Start en kom ekki við sögu. Gunnar Heiðar fór af leikvelli á 66. mínútu en hann fær ekki […]

200-300 bíla umferð á dag vegna Bakkafjöruhafnar

Gert er ráð fyrir 200-300 bíla umferð á Bakkafjöruvegi, sem verður ríflega ellefu kílómetra langur frá þjóðvegi eitt að fyrirhugaðri ferjuhöfn í Bakkafjöru. Þar af verða um 5% þungaflutningar. Þetta kemur fram í drögum að tillögu að matsáætlun vegna Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og grjótnáms á Hamragarðaheiði í Rangárþingi eystra, sem Vegagerðin hefur birt. (meira…)

200-300 bíla umferð á dag vegna Bakkafjöruhafnar

Gert er ráð fyrir 200-300 bíla umferð á Bakkafjöruvegi, sem verður ríflega ellefu kílómetra langur frá þjóðvegi eitt að fyrirhugaðri ferjuhöfn í Bakkafjöru. Þar af verða um 5% þungaflutningar. Þetta kemur fram í drögum að tillögu að matsáætlun vegna Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og grjótnáms á Hamragarðaheiði í Rangárþingi eystra, sem Vegagerðin hefur birt. Almenningur getur nú […]

Höfuð, herðar, hné og ………..

Gröfustrákarnir voru lygeglad þegar þeir hófu vinnu við nýja frystigeymslu Vinnsló í morgun. Stebbi Jónasar kom þá á hlaupahjólinu sínu, sem hann fékk í skóinn fyrir jólin 2005, og spurði um teikningarnar og framkvæmdaleyfið fyrir þessu en þá sögðu grafararnir að Binni í Vinnsló væri búin að fá þennan draum og það dyggði til þess […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.