Stórleikur í laugardalnum á Laugardag

Á morgun dregur verulega til tíðinda í baráttu ÍBV á toppi 1. deildar er liði leikur gegn Þrótti Reykjavík á Valbjarnarvelli í Laugardal. Þá gæti endanlega ráðist hvort um raunverulegan möguleika sé að ræða hjá liðinu að komast í Landsbankadeildina aftur.Strákarnir hafa verið að standa sig vel í undanförnum leikjum og unnu góðan sigur á […]

Lík veiðimannsins fundið

Kafarar frá Landsbjörgu fundu um þrjú leytið í dag lík veiðimannsins sem leitað hefur verið að í Soginu frá því á miðvikudag. Líkið lá á um það bil fjögurra metra dýpi í þrengingum skammt ofan við þar sem Sogið rennur í Álftavatn. (meira…)

Fundur í Skógaskóla 2. október

Verkefnið Safnaklasi Suðurlands hefur nýlega hlotið styrk frá Vaxtarsamningi Suðurlands og Vestmannaeyja. Helstu markmið með stofnun safnaklasans eru eftirfarandi: (meira…)

Bætir aldrei nið­urskurðinn að fullu

„Byggðir sem eiga allt sitt undir duttlungum náttúrunnar hafa löngum þurft að þola mismunandi árferði og miklar sveiflur varðandi afkomu sína. Allir þekkja þessar sveiflur, góðar og slæmar vertíðir o.s.frv. Hingað til hefur aldrei komið til tals að greiða skaðabætur vegna aflabrests,“ segir Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður um mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar. (meira…)

Verður haldið áfram í dag

Um 110 manns frá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar tóku þátt í leitinni í Soginu í gær. Í dag er áformað að leita ákveðin svæði betur með köfurum og bátum en umfang leitarinnar verður mun minna en í undanfarna tvo daga. (meira…)

Guðbjörg með 3 mörk

Danska handknattleiksliðið Frederikshavn Foxs, sem Guðbjörg Guðmannsdóttir leikur með, vann Esbjerg á útiveli 25-24 í dönsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Guðbjörg skoraði 3 mörk í leiknum og spilaði reyndar bara í seinni hálfleik en skoraði öll mörkin á mikilvægum stundum í leiknum.   Frederikshavn Fox hefur verið að finna sig í deildinni enda nýkominn í úrvalsdeildinna […]

Búnir að tengja við Álsey VE

Þá er búið að tengja við Álseynna og gekk það ágætlega. Þeir eru bakborðs hleri og þá er vaninn að þeir skjóti línu yfir til okkar því þeir sækja vænginn. En eftir fimm tilraunir þá var tekið til óskiptra málana, byssan hlaðin hjá okkur og línuni skotið yfir í fyrstu tilraun. Þetta var svo flott […]

Eigum að geta slegið þetta lið út

Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikmaður Valerenga kom inná sem varamaður í Evrópuleiknum við Austria Vín í kvöld en var þetta fyrrileikurinn sem fór fram í Austurríki. Gras.is sló á þráðinn til Gunnars eftir leikinn og er hann bjartsýn að sitt lið geti farið áfram þrátt fyrir 2-0 tap.,, Við vorum ekkert að skapa okkur í fyrrihálfleik […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.