Sköllótt dekk

Geðveikin skall á í gær, það kom hálka öllum að óvörum, þó að þetta gerist alltaf á sama tíma á hverju ári. Það var mikið að gera hjá okkur á verkstæðinu og gekk bara ágætlega. Guðmundur Rikka og Daði komu og hjálpuðu okkur, einnig sem Jenni gerði allt sem hann gat þó hryggbrotinn væri. (meira…)

Samgönguvandamál dagsins í dag

Síðustu vikur, mánuði og jafnvel ár hefur verið mikið rætt um þann samgönguvanda sem plagar þá sem búa í Vestmannaeyjum og þá sem vilja komast til Vestmannaeyja hverju sinni. Ríkisstjórn landsins hefur ákveðið að farið verði í framkvæmdir við Bakkafjöru og siglt verður á milli Bakka og Eyja í náinni framtíð en sú framtíð hefst […]

Friðun lands

Stundum er hún hálf furðuleg þessi friðunarumræða. Þetta eða hitt svæðið eigi að friða. Síðan þegar stórfyrirtæki (opinber eða ekki) þurfa að framkvæma, þá er eins og engin hafi heyrt orðið nokkru sinni áður. Ég held að menn hafi gengið um landið eins og þeir eigi það aleinir hingað til, sett upp vegi, raflínur, spennuvirki, […]

Árni Johnsen tekinn í þætti Auðuns Blöndals

Auðunn Blöndal er enn að finna ný fórnarlömb til þess að hrekkja í þætti sínum Tekinn. Nýjasta fórnarlambið var alþingismaðurinn Árni Johnsen sem sat í sakleysi sínu á veitingastaðnum Múlakaffi að borða með vini sínum í gærkvöldi þegar Auðunn og hans menn réðust til atlögu.Vinurinn “missti” óvart disk í gólfið með þeim afleiðingum að “þjónustustúlka” […]

Fimm nýir varaþingmenn undirrituðu drengskaparheit

Fimm varaþingmenn sátu sinn fyrsta þingfund í gær, og unnu drengskaparheit við upphaf þingfundar. Guðný Helga Björnsdóttir bóndi ók sæti Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra, tók sæti Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra.   Þrír aðrir varaþingmenn tóku formlega sæti viku fyrr, en sátu sinn fyrsta þingfund í gær. Það voru […]

Ég er alltaf stoltur þegar ég fæ að heyra mig kallaðan Eyjamann á mínum vinnustað.

www.eyjar.net heldur áfram að heyra í brottfluttum eyjamönnum bæði innanlands sem og erlendis með þeim tilgangi að fá að vita hvar þau eru stödd í lífinu og hvaða viðhorft þau hafa til Vestmannaeyja. Að þessu sinni heyrðum við í Jóni Óskari Þórhallssyni en Jón Óskar er búsettur í Grafarvogi í Reykjavík. Nafn? Jón Óskar Þórhallsson (1969)      Fjölskylduhagir? Ég á einn […]

Vestmannaeyjar: Rúgbrauð og rjómi í rigningunni

– En ég á rjóma,- sagði heiðurskonan Guðbjörg Sigurgeirsdóttir sem er allt í senn blaðakona, framsóknarkona og Tungnakona þannig að betri getur blandan ekki orðið. Samtalið átti sér stað inni á ritstjórn Frétta þar sem 8. þingmaður Suðurkjördæmis stóð blautur, hrakinn og hamingjusamur eftir volk í alltof stuttum og hægfara Herjólfi. Erindið er stjórnmálafundur í […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.