ÍBV lagði Íslandsmeistara Val að velli

ÍBV sigraði Íslandsmeistara Vals í fyrsta æfingaleik liðsins í Tyrklandi. Leiknum endaði með 1-0 sigri ÍBV og skoraði Bjarni Rúnar Einarsson markið í fyrri hálfleik. Sigurinn var þó dýrkeyptur því báðir Brasilíumennirnir meiddust og verða að öllum líkindum frá í nokkurn tíma, amk taka þeir ekki meira þátt í æfingaferðinni. Alexandre tognaði aftan í læri […]

Hægt að skrá athugasemdir við fréttir

Nú hefur verið tekið í gagnið nýtt athugasemdarkerfi á Eyjafréttum en með því geta lesendur skráð athugasemdir við fréttir á síðunni. Slíkt er alþekkt á bloggsíðum og oft skapast skemmtilegar umræður í kjölfar færslna. Til að skrá athugasemdir þarf einungis að skrá sig sem notanda og er hægt að gera það með því að smella […]

Henning Eyþór Jónasson til Selfoss.

Selfyssingar fengu á dögunum góðan liðsstyrk þegar Stokkseyringurinn Henning Jónasson kom til þeirra frá KR. Henning lék fimm leiki í Landsbankadeildinni með KR síðastliðið sumar og skoraði í þeim eitt mark, en í félagsskiptaglugganum var hann lánaður í Selfoss og átti mikinn þátt í að hjálpa liðinu að komast upp í 1.deild. (meira…)

Fangi stunginn með útskurðarsporjárni í rassinn

Lögreglan á Selfossi rannsakar nú hver stakk fanga á Litla-Hrauni í rasskinnina með útskurðarsporjárni á föstudag. Fram kemur í dagbók lögreglunnar að fjórir fangar hafi komið inn í söluturn í fangelsinu þar sem fyrir var einn fangi. Hann vissi svo ekki fyrr en hann fékk sting í aðra rasskinnina. (meira…)

Guðbjörg á leiðinni til Eyja?

Guðbjörg Guðmannsdóttir, landsliðskona og leikmaður Frederikshavn Fox í Danmörku, er væntanlega á heimleið og þá til Eyja. Heimildir www.handbolti.is herma að hún hafi hug á að snúa heim til Eyja og muni þá væntanlega leika með ÍBV ef þær verða með lið á næsta vetri. (meira…)

ÍBV ekki upp í 1. deild

Körfuknattleikslið ÍBV lék í gær gegn Hrunamönnum í undanúrslitum 2. deildar en sigurvegari leiksins tryggði sér um leið sæti í 1. deild að ári. Ljóst var að leikurinn yrði Eyjamönnum erfiður en Hrunamenn urðu efstir í A-riðli og fengu því heimaleik. Lokatölur urðu hins vegar 79:75 þannig að tæpara mátti það varla vera. (meira…)

Sex Íslandsmeistaratitlar í judó

Íslandsmeistaramót JSÍ yngri en 20 ára var haldið daganna 14. og 15. mars síðastliðinn. Júdodeild Umf. Selfoss sendi 18 keppendur á mótið og stóð hópurinn sig mjög vel og kom heim með hvorki meira né minna en 6 gull, 3 silfur, 4 brons og einn eignabikar ! Frammistaða hópsins var eftirfarandi: (meira…)

Húsleit hjá hestaníðingi

Lögreglan á Selfossi gerði húsleit hjá dæmda hestaníðingnum Óla Pétri Gunnarssyni en hann var dæmdur árið 2006 fyrir illa meðferð á hestum. Hann meinaði fóðureftirlitsmanni inngöngu í hesthús sem hann hefur umráð yfir með þeim afleiðingum að leitarheimild þurfti til. Fóðureftirlitsmaðurinn fór í fylgd lögreglunnar í hesthúsið þar sem brjóta þurfti niður hurðina til að […]

Greiða kennurum ekki álag

SVEITARFÉLÖGIN Árborg og Ölfus og Hveragerðisbær hafa hafnað tilmælum um að greiða grunnskólakennurum og öðrum starfsmönnum sveitarfélaganna eingreiðslu vegna aukins álags í starfi. Sum sveitarfélög hafa greitt starfsmönnum sínum álag í formi eingreiðslu. Sveitarfélögin á Árborgarsvæðinu vísa til þess í ályktunum sínum að lagt sé upp með ný vinnubrögð í kjaraviðræðum kennara og vonast til […]

ÍBV æfir við góðar aðstæður í Tyrklandi

Meistaraflokkur ÍBV í knattspyrnu æfir nú í Tyrklandi. Þeir munu vera þar í 9 daga við kjöraðstæður, æfa og leika þrjá æfingaleiki. Á morgun mun liðið t.d. leika við Íslandsmeistara Vals. Á miðvikudag er svo leikur við lið frá Kazakstan þar sem Borat Sagdiyev leikur í framlínunni. Á föstudag er svo síðasti leikur liðsins og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.