Vortónleikar Söngsveitar Hveragerðis

Söngsveit Hveragerðis heldur árlega vortónleika í Hveragerðiskirkju, á morgun fimmtudaginn 1. maí, uppstigningardag, kl. 17:00 Á efnisskrá er íslensk og erlend tónlist. Stjórnandi Söngsveitarinnar er Margrét Stefánsdóttir og undirleikari á píanó er Ester Ólafsdóttir. Margir einsöngvarar syngja með kórnum: (meira…)

Kynningarfundur fyrir Ungmennafélag Íslands

Sunnudaginn 27. apríl kom hópur frá Ungmennafélagi Íslands í heimsókn í Árborg og skoðaði íþróttaaðstöðu Sveitarfélagsins. Bragi Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi hélt kynning á íþrótta- og tómstundamálum í Sveitarfélaginu fyrir hópinn í íþróttahúsinu Iðu. Þar var farið yfir stöðuna í Árborg í dag og hvað væri á döfinni í náinni framtíð. (meira…)

Herjólfi seinkar í dag vegna vélabilunar

Seinkun verður á áætlun Herjólfs í dag vegna vélabilunar sem kom upp í morgun. Skipið hélt ekki af stað frá Eyjum fyrr en klukkan 9.45 og er áætlaður komutími í Þorlákshöfn klukkan 13.00. Ekki er vitað á þessari stundu hvaða vélarbilun olli töfunum. (meira…)

Fagnar 60 ára afmæli

Rakarastofa Björns og Kjartans á Selfossi fagnar 60 ára afmæli síðar á þessu ári. Upphafið má rekja til þess er Gísli Sigurðsson opnaði rakarastofu á Selfossi árið 1948. Fjölskyldan hefur haft hendur í hári Flóamanna og Sunnlendinga allar götur síðan. Fyrst Gísli og síðan sonur hans Björn Ingi og þá síðar einnig synir hans þeir […]

Sagði systur sína vera við stýri

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi liðinni viku og tveir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Í öðru fíkniefnaaksturstilvikinu leikur grunur á að ökumaður, kona, hafi gefið upp nafn systur sinnar. (meira…)

38 stöðvaðir fyrir aka of hratt

Í vikunni voru 38 stöðvaðir fyrir aka of hratt í umdæminu en sá sem hraðast ók var á 125 km hraða. Tíu voru boðaðir í skoðun með bifreiðar sína og númer voru tekin af þremur ökutækjum. Tveir voru stöðvaðir réttindalausir á bifreiðum í vikunni og er annar þeirra sviptur ökuleyfi en hin hafði ekki öðlast […]

Hafsteinn �?orvaldsson og börn gefa Fossheimum 1 milljón

Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands færði Fossheimum, hinni nýju hjúkrunardeild á HSu, eina milljóna króna að gjöf við opnun deildarinnar í dag. Gjöfin er minningargjöf um eiginkonu hans Ragnhildi Ingvarsdóttur og er frá Hafsteini og börnum þeirra hjóna. Ragnhildur sem var starfsmaður sjúkrahússins í 30 ár var fædd 13.08.1929 og lést þann 16.12.2006. . […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.