Gunnar Heiðar skoraði glæsilegt mark

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði í kvöld eitt marka Vålerenga þegar liðið lagði botnlið Ham Kam í norsku úrvalsdeildinni í kvöld en leikurinn fór fram á heimavelli Vålerenga. Lokatölur urðu 3:0 en Gunnar Heiðar skoraði annað mark liðsins. Vålerenga er komið með 14 stig eftir tíu leiki og er í sjötta sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Hægt […]
Langþráð lög um innheimtur
Á ÞINGLOKADEGI vorsins var samþykkt frumvarp til innheimtulaga, sem og frumvarp um neytendalán og frumvarp til breytinga á samkeppnislögum. Með þeim urðu alls 17 frumvörp frá viðskiptaráðuneytinu að lögum í vetur og er það harla góður árangur enda starfsfólk ráðuneytisins unnið myrkranna á milli þetta fyrsta ár nýrrar ríkisstjórnar. (meira…)
Íbúafundur fyrir íbúa af erlendum uppruna
Boðað er til íbúafundar föstudaginn 6. júní n.k. kl. 18 fyrir íbúa jarðskjálftasvæðanna á Suðurlandi sem eru af erlendum uppruna. Fundurinnverður haldinn í Vallaskóla, Sólvöllum, á Selfossi, í austurrými. Á fundinum munu verða túlkar sem túlka á pólsku, ensku og litháísku. Atvinnurekendur eru hvattir til að láta boð um fundinn berast á meðal starfsmanna sem […]
Síðasta sýningarhelgi Jóns Inga á Eyrarbakka
Málverkasýning Jóns Inga Sigurmundssonar stendur nú yfir í Gallerí Gónhól (gamla hraðfrystihúsinu) á Eyrarbakka. Sýningin var liður í hátíðinni Vor í Árborg, sem hófst 8. maí. 58 myndir eru á sýnunginni og hefur aðsókn verið mjög góð og er um helmingurinn mynda seldur Á sýningunni eru olíu- og vatnslitamyndir. Sýningunni lýkur sunnudaginn 8. júní. (meira…)
Framkvæmdum lýkur í sumar

Framkvæmdir við Barnaskóla Vestmannaeyja sem hófust sumarið 2007 eru nú langt komnar og farið að sjá fyrir endann á verkinu. Framkvæmdirnar voru mun yfirgripsmeiri en menn ætluðu í fyrstu en það stafaði fyrst og fremst af slæmu ástandi skólans sem undirstrikar mikilvægi þessara framkvæmda. Fyrir vikið tókst ekki að ljúka framkvæmdum á tilsettum tíma en […]
Breyttur útfarartími

Runólfur Dagbjartsson (Dúddi Múr), sem andaðist 19. maí síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 6. júní klukkan 13.00 en ekki klukkan 15.00 eins og áður hafði verið auglýst. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Kvenfélagið Líkn í Vestmannaeyjum (meira…)
Hallgrímur í 2. sæti í Hafnarfirði

Einn Vestmannaeyingur tók þátt í fyrsta stigamóti unglinga í golfi á þessu ári, Kaupþingsmótaröðinni, en það mót var haldið á Hvaleyrarvellinum í Hafnarfirði á laugardag. Það var Hallgrímur Júlíusson yngri, sem varð einmitt Íslandsmeistari í sínum flokki í fyrra. Hallgrímur, sem keppir í flokki 13-14 ára stráka, varð í 2. sæti í þessu móti, á […]
Arnsteinn Ingi ráðinn tímabundið sem forstöðumaður íþróttamiðstöðvar

Arnsteinn Ingi Jóhannsson hefur verið ráðinn í afleysingastöðu forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar. Jón Pétursson, framkvæmdarstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar, sagði að fimm hefðu sótt um stöðuna en um tímabundna ráðningu væri að ræða vegna veikindaleyfis forstöðumanns. (meira…)
Yngvi rifbeinsbrotinn og frá í nokkrar vikur

Yngvi Borgþórsson fékk þungt högg á síðuna á upphafsmínútunni í bikarleiknum í gær gegn ÍR. Hann lék þó næstu 20 mínútur og hefði sennilega klárað leikinn en var gegn vilja sínum tekin útaf. Yngvi var lagður inn á sjúkrahúsið strax að leik loknum og kom í ljós að hann var illa rifbeinsbrotinn. Yngvi þarf að […]
Klemmdist illa og missti framan af tveimur fingrum

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF sótti slasaðan sjómann um borð í Drangavík VE 80 í gærkvöldi og flutti á Borgarspítala Háskólasjúkrahús í Reykjavík. Birgir Stefánsson, stýrimaður á Drangavík, sagði skipverjann hafa klemmst illa á keðju og tók framan af tveimur fingrum vinstri handar, vísifingri og löngutöng. (meira…)