Færri númeraplötur framleiddar á Litla-Hrauni
Miklu minna er nú framleitt af bílnúmeraplötum á Litla Hrauni. Í apríl voru framleiddar um 7000 númeraplötur, en í síðasta mánuði voru þær ríflega 1200. Guðjón Stefánsson, verkstjóri númeradeildar, segir framleiðsluna svo litla og pantanir svo fáar um þessar mundir, að tími sé kominn til að finna ný verkefni fyrir starfsmenn númeradeildarinnar. Hann segir sáralítið […]
Vatnsréttindi ríkisins í �?jórsá ekki niðurfallin

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun ríkið og Landsvirkjun af kröfum landeiganda Skálmholtshrauns við Þjórsá um að viðurkennt yrði með dómi að eignarréttur ríkisins á vatnsréttindum í Þjórsá í landi Skálmsholtshrauns væri niðurfallinn. Dómsmálið tengist áformum Landsvirkjunar um að byggja Urriðafossvirkjun sem er ein þriggja áformaðra virkjana í neðri hluta Þjórsár. (meira…)
Bílvelta við Kerið
Bílvelta varð rétt norðan við Kerið í Grímsnesi í kvöld. Að sögn lögreglu voru fjórir í bílnum og komust þeir út af sjálfsdáðum. Enginn þeirra mun hafa meiðst alvarlega en fyrsta tilkynning til lögreglu var á þá leið að einn væri fastur í bílnum. (meira…)
Á heimavelli á Hrauninu

Troðfullt var á veitingastaðnum Hafinu bláa í fyrrakvöld þegar Hrútavinafélagið á Suðurlandi blés til kvöldverðar þar sem boðið var upp á hausastöppu. Formaður Hrútavina, Björn Ingi Bjarnason, er eitt mesta félagsmálatröll á landinu og viðburðir á hans vegum eru gríðarlega vel sóttir. Stjarna kvöldsins var einn af skjólstæðingum Hrútavina, Árni Johnsen þingmaður. (meira…)
Vilja vana kynferðisbrotamenn
Á visi.is birtist í dag grein um kynferðisbrotamenn í Póllandi. Fyrirsögn þessarar fréttar var VILJA VANA KYNFERÐISBROTAMENN. – Kannski svolítið tíeggjuð fyrirsögn, – eða hvað? (meira…)
�?órir er Elliðaeyingur

Þau leiðu mistök urðu við vinnslu Frétta í vikunni að myndum var víxlað. Spurt var hvaða útey er best og þar sem svörin birtust við ranga mynd, eru ungir drengir nú kenndir við aðrar úteyjar en þeir kæra sig um. Þó drengirnir verði sjálfsagt ekki á Lundaballinum annað kvöld má búast við að foreldrar þessara […]
Eyjatölvudagurinn á morgun

Eyjatölvur hafa fengið til liðs við sig samstarfsaðila sína, Vodafone, Hátækni og Opin kerfi og saman ætla þau að efna til Eyjatölvudags á morgun, laugardag. Verða þau með ýmsar uppákomur og kynningar á vörum og þjónustu sem eru í boði hjá Eyjatölvum. Á staðnum verður lukkuhjól og eitthvað fá gestir í svanginn. Haraldur Bergvinsson og […]
Eins og prestur á eftirlaunum
Ég hef ekkert að segja, en þakka þér samt fyrir síðast,“ sagði séra Gunnar Björnsson við blaðamann þegar hann innti hann eftir því hver skyldi færa hjónavígslu sem hann annaðist í kirkjubók. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Eftir að hafa rætt við fjöldann allan af prestum, próföstum og Biskupsstofu eru málin farin […]
Selfoss færðist til í skjálftunum
Mælipunktar í Árborg, Ölfusi og Hveragerði færðust til í jarðhræringunum í lok maí og er nú unnið að endurmælingum þeirra. Sambærileg tilfærsla varð í skjálftunum árið 2000. Þá færðust punktar til um 10 sentimetra á Selfossi en gengu að hluta til baka. Í skjálftunum síðastliðið vor færðist Selfoss um sautján sentimetra til suðausturs og hækkaði […]