Bikarveisla í Eyjum á morgun

Á morgun, laugardag verður bikar­veisla í Íþróttamiðstöðinni þegar karla- og kvennalið spila í 16 liða úrslitum. Og það sem meira er, bæði liðin taka á móti Fram en karla- og kvennalið Safamýrar­liðsins spila í úrvalsdeild á meðan lið ÍBV eru deild neðar. Það verður því fróðlegt að sjá hvar lið ÍBV standa gagnvart úrvals­­deild­ar­liðunum. (meira…)

�?orskurinn aldrei verið sterkari

Þorskárgangurinn frá 2008 mældist sá sterkasti frá upphafi stofnmælinga að hausti í haustralli Hafrannsóknastofn unarinnar, sem fram fór í 14. sinn í lok september. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, segir þetta í samræmi við væntingar stofnunarinnar. (meira…)

Siglt með slasaðan sjómann til hafnar

Frystitogarinn Hrafn Sigurbjörnsson frá Grindavík kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi með slasaðan sjómann. Skipið hafði fengið á sig brotsjó og einn skipverjanna féll við það og meiddist á baki. Því var ákveðið að sigla til Vestmannaeyja og færa manninn undir læknishendur og taka nýjan skipverja um borð. (meira…)

Gengið til samninga við Vilhjálm um akstur aldraðra og fatlaðra

Vilhjálmur Bergsteinsson var með lægsta tilboðið í akstur á vegum fjölskylduráðs, með aldraða og fatlaða í Vestmannaeyjum. Alls bárust fimm tilboð, hæsta tilboðið var upp á tæpa 21 milljón en það lægsta upp á 8,7 milljónir. Tilboðin má lesa hér að neðan en þau miðuðust öll við 12 mánaða tímabil. Stefnt er að því að […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.