Ávísun á verkfall sjómanna

„Menn eru náttúrulega gífurlega ósáttir og þetta er bara ávísun á verkfall,“ sagði Bergur Kristinsson, formaður skipstjóra og stýrimannafélasins Verðandi þegar hann var spurður út í afnám sjómannaafsláttarins. „Ég var á farmanna- og fiskimannaþingi á fimmtudag og föstudag og þar var smá fjör. Þegar fréttin um afnám sjómannaafsláttarins barst okkur, afþökkuðum við boð Jóns Bjarnasonar, […]
Fór á slysó eftir �?tsvar

Það er ekki með öllu hættulaust að taka þátt í spurningakeppninni á RÚV, Útsvari. Baráttan um bjölluna getur verið harðvítug og á því fékk Eyjamaðurinn Sighvatur Jónsson að kenna. Endaði á slysó eftir þáttinn. (meira…)
Nýju sturtuskattarnir

Það er þyngra en tárum taki að horfa á ríkisstjórnina útfæra og réttlæta nýju „framsæknu Norrænu velferðarskattastefnuna“ sína. Með kreppuna og erfiða stöðu ríkissjóðs sem afsökun láta vinstri flokkarnir gamla drauma um óskiljanlegt og ómarkvisst fjölþrepaskattkerfi loks rætast. Jöfnuður, réttlæti og sanngirni eru sögð markmiðin með þessum ósköpum en hver heilvita maður sér að þeim […]
Páll Rósinkranz leysir Helga Björns af hólmi

Jólahlaðborð Hallarinnar verður haldið föstudaginn 4. desember og að vanda verður hlaðborðið glæsilegt. Skemmtiatriðin verða heldur ekki af verri endanum en upphaflega átti Helgi Björnsson að syngja inn jólin fyrir veislugesti. Helgi forfallaðist hins vegar en varamaðurinn er ekki af verri endanum, flauelsbarkinn Páll Rósinkranz mun syngja jólalögin á jólahlaðborði Hallarinnar. Þetta kemur fram í […]
Vegleg Jólagjafahandbók með Fréttum

Eins og undanfarin ár gefur vikublaðið Fréttir út sína árlegu Jólagjafahandbók en handbókin kemur út með blaðinu í kvöld. Jólagjafahandbók Frétta er stútfull af skemmtilegu efni sem tengist jólunum á einn eða annan hátt auk þess sem lesendur geta fengið góða hugmynd að jólagjöfinni í ár. Meðal þess sem er að finna í blaðinu er […]