Greiðum þeim til baka með sanngjörnum hætti

Fróðlegt hefur verið að fylgjast með landsmálaumræðunni undanfarið. Af eðlilegum ástæðum snýst hún öðrum þræði um það hvernig happadrýgst verður að koma okkur Íslendingum út úr þeim efnahagsþrengingum sem okkur hefur verið komið í. Ég segi komið í vegna þess að stefna ríkisstjórna liðinna ára leiddi beinlínis af sér þá efnahagskreppu sem bítur nú svo […]
Vinnslustöðin gefur Fjölskylduhjálpinni og Mæðrastyrksnefnd 2.000 poka af humri

Vinnslustöðin í Vestmannareyjum afhenti í dag Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur að gjöf samtals 900 kg af humri til dreifingar meðal skjólstæðinga samtakanna fyrir jólin. Humarinn er frosinn í 450 gramma pokum. Hvor samtök fengu 1.000 poka til ráðstöfunar. (meira…)
Rólegt hjá lögreglunni í vikunni

Eins og í síðustu viku þá var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og ekkert sem upp kom sem telst til stórtíðinda. Eins og fram kom í sl. viku þá hefur lögreglan verið með sérstakt umferðareftirlit í samstarfi við Ríkislögreglustjórann og Vegagerðina og var töluverður fjöldi ökutækja stöðvaður við eftirlitið. Einhverjir ökumenn fengu […]
Greinilegur árangur af landgræðslunni í Landeyjasandi

Greinilega sést á nýjum gervihnattamyndum af Landeyjasandi, sem Landmælingar hafa keypt, að talsverður árangur hefur orðið af landgræðslu í nágrenni Landeyjahafnar. Landgræðslan nú sáð melfræi í 300 hektara svæði vestan Markarfljóts. (meira…)
Annar tveggja veltiugga Herjólfs skemmdur vegna gleymsku

Annar tveggja veltiugga Herjólfs skemmdist við bryggju í Vestmannaeyjum í gærkvöld og er ugginn ónothæfur. Skipið siglir enn á ný á öðrum ugganum en nýlega var sami veltiuginn lagfærður eftir að hafa verið skemmdur í tæpt ár. (meira…)
Mótmælir áformum sjávarútvegsráðherra

Útvegsbændafélagið Heimaey mótmælir áformum sjávarútvegsráðherra um skerðingu aflaheimildir þeirra útgerða, sem selja afla á erlendum ferskfiskmörkuðum. Ísfiskmarkaðarnir eru Íslendingum mikilvægir og gefa oft á tíðum umtalsvert hærri gjaldeyristekjur en fást myndu fyrir aflann eftir hefðbundna verkun. (meira…)
Telur að ferðamönnum fjölgi í Vík þegar Land-Eyjahöfn verður tekin í notkun

Sveitarfélög austan Þjórsár á Suðurlandi skoða nú í sameiningu áhrif og möguleika samfara nýrri Landeyjahöfn sem taka á í notkun næsta sumar. Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, telur að ferðamönnum muni fjölga í Vík í Mýrdal þegar Vestmannaeyjar færast nær Mýrdalnum með breyttum samgöngum. (meira…)
Af tæknilegum mistökum

Svo langt síðan að ég skrifaði síðast og svo mikið búið að gerast, að ég leyfi mér að kalla þessa grein tæknileg mistök. Eins og alþjóð veit, þá var það bæði fyrrverandi og núverandi þingmaður úr Eyjum sem kom fyrst fram með þennan frasa, tæknileg mistök, en orðatiltækið lét hann hafa eftir sér eftir að […]
ÍBV í sterkum riðli

Nú liggur fyrir riðlaskipting Deildarbikarkeppninnar sem hefst á nýju ári. Þrjú Eyjalið taka þátt í keppninni, karlalið ÍBV og KFS og kvennalið ÍBV. Karlalið ÍBV leikur í efstu deild, sem er skipt í þrjá riðla. ÍBV leikur í 3. riðli sem er nokkuð sterkur á að líta, eins og reyndar riðlarnir allir eru. KFS leikur […]