Bein útsending á eyjafrettir.is
Vegna mikils áhuga, ekki síst á fastalandinu, hefur verið ákveðið að hafa beina útsendingu frá baráttufundinum sem haldinn verður í kvöld í Vestmannaeyjum hér á www.eyjafrettir.is. Fundurinn verður haldinn í samkomuhúsinu Höllinni og hefst klukkan 20:00, en húsið verður opnað kl. 19:30. (meira…)
Skemmdir á þremur stöðum

Mikið óveður gengur nú yfir Vestmannaeyjar og hefur lögreglan varað fólk við og hjálparsveit Björgunarfélagsins er í viðbragðsstöðu. Vitað er um skemmdir á húsi við Brimhólabraut sem skemmdist í óveðri í haust. Stífa varð grindverk við Hólagötu og járn er að losna af húsi við Goðahraun. (meira…)
Biður fólk að líta í kringum sig eftir lausum munum og sýna aðgát vegna óveðursins

Lögreglan varar við miklu óveðri sem er skollið á. Samkvæmt síðustu athugun á Stórhöfða var 10 mínútna meðalvindhraði 33 m á sekúndu og mesta hviðan 42 m. Gert er ráð fyrir að verst verði veðrið milli klukkan 15.00 og 21.00 en hámarki nær það klukkan 18.00. (meira…)
Eyjapeyjar fylgdust með landsliðinu á Volcano

Í dag leikur íslenska karlalandsliðið gegn heimamönnum í Austurríki á EM í handbolta. Leikurinn er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á RÚV en útsendingin hefst klukkan 17.00. Hægt er að fylgjast með EM í handbolta á stórum skjá á Volcano Café og þetta nýttu leikmenn ÍBV sér á þriðjudaginn þegar Ísland lék gegn Serbíu. (meira…)
Seinni ferð Herjólfs sleginn af
Seinni ferð Herjólfs, sem fara átti kl. 16.00 í dag frá Eyjum hefur verið slegin af vegna veðurs. 27 metra meðalvindur var á Stórhöfða kl. 12 í dag og í mestu hviðum sló í 42 metra. Samkvæmt veðurspá á versta veðrið að koma síðdegis. Öldudufl við Surtsey sýnir 7.1 metra ölduhæð þar en Bakkafjöruduflið (meira…)
Dýpkun á að hefjast í apríl

Enn er ekki ljóst hver smíðar farþegaaðstöðu Landeyjahafnar þegar aðeins rúmir fimm mánuðir eru þangað til höfnin á að vera tilbúin. Auglýst var eftir tilboðum í lok nóvember og voru tilboðin, sem alls voru 27 talsins, opnuð 17. desember síðastliðinn. Lægsta tilboðið átti SÁ verklausnir ehf, 96,8 milljónir tæpar en kostnaðaráætlun hönnuða var upp á […]
Norðanmenn hugsa sér gott til glóðarinnar

Helgina 12. til 14. febrúar nk. verður boðið upp á beint flug fram og til baka milli Vestmannaeyja og Akureyrar. Á fréttavef Akureyrar segir að þetta sé góður kostur fyrir Norðlendinga og kannski sérstaklega norðlenska kylfinga þegar í fyrsta sinn verði farið í beint áætlunarflug á milli Vestmannaeyja og Akureyrar, tvisvar sinnum fram og til […]
Fyrningarhugmyndir ávísun á stórslys

Um það leyti sem kvótakerfinu var komið á var sjávarútvegur á Íslandi í sjálfheldu. Flotinn var allt of stór fyrir þær veiðiheimildir sem voru í boði og rekstur flesta fyrirtækja í atvinnugreininni var á brauðfótum. Margir leituðu eftir því að selja fyrirtækin eða hætta rekstri en fundu enga útgönguleið. Áhugi á að kaupa sjávarútvegsfyrirtæki var […]
Varað við stormi sunnantil á landinu síðdegis
Veðurstofan varar við stormi sunnantil á landinu síðdegis og mikilli úrkomu á suðausturlandi í kvöld. Búast má við mjög hvössum vindhviðum (um og yfir 40 m/s) við fjöll suðvestantil á landinu síðdegis. Með morgninum verður hægt vaxandi suðaustlæg átt og skúrir, dálítil rigning með morgninum, en þurrt á Norðurlandi fram eftir degi. Austan og suðaustan, […]