Byrjað að prófa tækin

Nú liggur vorið í loftinu og bær­inn breytir um brag og nú styttist í sumarið. Margir bíða spenntir eftir sól og yl og hugsa sér gott til glóðar­innar þegar útisvæðið við sundlaugina verður tilbúið. Þá verður væntanlega hægt að hafa það notalegt á sólbaðsbekkjum eða fylgjast með börnunum leika sér í vatnsrennibrautum og fleira skemmtilegu. […]

Margrét Lára skoraði eitt gegn Króatíu

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eitt marka íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem lagði það króatíska í undankeppni Heimsmeistaramótsins í dag. Þetta var 53. mark Margrétar með A-landsliðinu en hún hefur nú spilað 65 leiki með liðinu. Auk þess að skora nældi hún sér í guld spjald. (meira…)

Vestmannaeyjameistaramótið í FIFA haldið um páskahelgina

Dagana 2. og 3. apríl næstkomandi verður haldið Vestmannaeyjameistaramótið í FIFA en þetta er í annað sinn sem mótið er haldið. Í fyrra tókst mótið með eindæmum vel, 22 spilarar tóku þátt og því var ákveðið að blása til leiks á ný um páskana. Skráning í mótið hófst í gær og fór vel af stað […]

Áfram Ísland, ekkert ESB

Áfram Ísland, ekkert ESB er yfirskrift fundar í Akoges salnum í kvöld, miðvikudaginn 31. mars kl. 20:00. Frummælendur verða Elliði Vignisson bæjarstjóri og Eygló Harðardóttir þingmaður. Fundurinn er í röð funda Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Alþingi samþykkti með naumum meirihluta þann 16. júlí 2009 að sækja um aðild að Evrópusambandinu. (meira…)

Styrktarkvöld ÍBV á Spot í Kópavogi í kvöld

Kokkalandslið Eyjanna mun framreiða glæsilega rétti á Styrktarkvöldi ÍBV á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi í kvöld. Búið er að setja upp glæsilega dagskrá og matseðillinn er ekki síðri en kokkar kvöldsins eru þeir Einsi Kaldi, Grímur, Siggi Gísla, Palli Grétars og Kári Fúsa. Eftir kvöldið mun svo stuðbandið Tríkot halda uppi stuðinu fram á rauða […]

Breytingar á reglugerðum um skötuselsveiðar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, hefur undirritað tvær reglugerðir er snerta veiðar á skötusel. Annars vegar er um að ræða sérstaka úthlutun á 500 tonnum af skötusel á fiskveiðiárinu 2009 til 2010 og hins vegar breytingar á reglugerð varðandi veiðar á skötusel í net. Fréttatilkynningu frá landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu má lesa hér að neðan. (meira…)

�??Vil ekki enda ferilinn með þessum hætti�??

„Ég fór í myndatöku í gær og fékk þá niðurstöðu að hásinin á vinstri fætinum er slitin eins og ég vissi. Ég heyrði smellinn og fann strax að hásinin hefði slitnað og því komu þessar fréttir mér ekkert á óvart,“ sagði Hermann Hreiðarsson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth og fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í samtali […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.