Fluttur til Reykjavíkur

Upphaflega barst tilkynning um að tveir skipverjar hefðu orðið fyrir eitrun, en á daginn kom að þeir voru þrír. Mennirnir höfðu verið að störfum í vélarrúm Hugins VE í Vestmannaeyjahöfn þegar losnaði um tank og kolsýringur gaus upp. (meira…)

Tveir misstu meðvitund í Vestmannaeyjum

Svo virðist vera sem kolsýruleki hafi komið upp í skipi í Vestmannaeyjahöfn í dag. Áhöfnin var um borð í bátnum þegar slysið varð. Tveir menn voru að vinna í vélarrúmi bátsins við þröngar aðstæður þegar kolsýran losnaði. Þeir misstu báðir meðvitund. Annar þeirra fékk meðvitund fljótlega og var fluttur strax á sjúkrahús þar sem hann […]

Uppsjávarskipið Ísleifur VE dælir í Landeyjahöfn

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta hefur Siglingastofnun farið þess á leit við Vinnslustöðina að fá uppsjávarskipið Ísleif VE til dýpkunarfram­kvæmda í Landeyjahöfn. Kristján Óskarsson viðraði þá hug­mynd að fá uppsjávarskip til að dæla upp sandi í höfninni og hafði meðal annars borið hugmyndina undir Siglingastofnun. Það hefur nú borið þann árangur að gera á tilraun með að […]

12 dagar í fyrsta leik

Nú eru aðeins 12 dagar í fyrsta leik karlaliðs ÍBV í knattspyrnu en mánudaginn 2. maí taka Eyjamenn á móti Fram á Hásteinsvellinum. Leikmenn og forráðamenn treysta eins og alltaf á góðan stuðning á vellinum í sumar, bæði á Hásteinsvelli og á útivöllum landsins og til að hita stuðningsmenn liðsins upp, munu birtast reglulega myndbönd. […]

Leikskólastjórar ósáttir

Gert er ráð fyrir að leggja niður stöðu leikskólafulltrúa og deildar­stjóra í Grunnskólanum og skerpt verður á útdeilingu kennslustunda. Með þessum aðgerðum er áætlað að sparist í kringum 14 milljónir króna. Þetta var samþykkt á síðasta fundi fræðslu- og menningarráðs. (meira…)

�?ljóst hvað Skandia dælir lengi

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort óskað verður eftir að sanddæluskipið Skandia haldi áfram sanddælingu í maí, en í verksamningi við Íslenska gámafélagið, sem gerir skipið út, er miðað við að ekki sé dælt sandi í sumar. (meira…)

Sumardagurinn fyrsti haldinn hátíðlegur á morgun

Á morgun, fimmtudag er Sumardagurinn fyrsti og verður fjölbreytt hátíðahöld í Vestmannaeyjum við það tækifæri. Klukkan 11:00 verður tilkynnt hver er Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2011 í Listaskóla Vestmannaeyja. Klukkan 13:45 verður lagt af stað í skrúðgöngu við Ráðhúsið en gengið verður upp í Íþróttamiðstöðina þar sem tekur við sumargleði. Nánari dagskrá má sjá hér að neðan. […]

Landeyjahöfn ekki opnuð fyrir páska

Landeyjahöfn verður ekki opnuð fyrir páska. Í sameginlegri tilkynningu frá Siglingastofnun, Vegagerðinni, Eimskipafélaginu og Vestmannaeyjabæ kemur fram að siglingar Herjólfs um páskana verði til og frá Þorlákshöfn. Ekki verði hægt að sigla í Landeyjahöfn vegna veðurs og ölduhæðar. Dýpi er ekki tilgreint sem ástæða í tilkynningunni en dæling úr höfninni hefur gengið ágætlega undanfarið þó […]

Brotist inn á veitingastað í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók mann í nótt sem er grunaður um að hafa brotist inn á veitingastað og stolið þaðan áfengi. Vitni tilkynnti að tveir menn væru að reyna að brjótast inn á staðinn og var annar þeirra á svæðinu þegar lögregla kom að, hinn fannst hins vegar ekki. (meira…)

Langtíma lausn er ný sorpbrennsla

Langtíma lausn í sorpmálum Eyjamanna er að endurnýja sorpbrennsluna, segir bæjarstjóri Vestmannaeyja. Bærinn þarf að skila inn tillögum til úrbóta til Umhverfisstofnunar fyrir páska eftir að í ljós hefur komið að ryk og díoxín er enn mikið í útblæstri stöðvarinnar. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.