Landeyjahöfn ekki opnuð fyrir páska
Landeyjahöfn verður ekki opnuð fyrir páska. Í sameginlegri tilkynningu frá Siglingastofnun, Vegagerðinni, Eimskipafélaginu og Vestmannaeyjabæ kemur fram að siglingar Herjólfs um páskana verði til og frá Þorlákshöfn. Ekki verði hægt að sigla í Landeyjahöfn vegna veðurs og ölduhæðar. Dýpi er ekki tilgreint sem ástæða í tilkynningunni en dæling úr höfninni hefur gengið ágætlega undanfarið þó aðstæður hafi verið erfiðar. Það er hins vegar spáð sunnanhvassviðri og mikilli ölduhæð á sunnudag og mánudag og því hefur það verið slegið af að opna Landeyjahöfn.

Nýjustu fréttir

Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.