Eyjamaðurinn Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, tilkynnti í hádeginu í dag 17 manna lokahóp Íslands fyrir Evrópumótið sem fram fer í Rúmeníu dagana 3.–20. desember.
Þrjár Eyjakonur eru í hópnum. Það eru þær Elísa Elíasdóttir, leikmaður Vals, Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, og Díana Dögg Magnúsdóttir, leikmaður Blomberg-Lippe í Þýskalandi.
Landsliðið kemur saman 23. nóvember og heldur þá til Svíþjóðar þar sem það æfir og leikur tvo vináttulandsleiki gegn heimakonum. Fyrri leikurinn fer fram í Malmö 26. nóvember og sá síðari í Halmstad 28. nóvember. Að þeim leikjum loknum heldur íslenska liðið til Oradea í Rúmeníu þar sem riðlakeppnin Evrópumótsins fer fram.
Ísland leikur í A-riðli keppninnar og mætir Slóveníu í fyrsta leik fimmtudaginn 3. desember klukkan 16:30. Næsti leikur er gegn Svartfjallalandi laugardaginn 5. desember klukkan 16:30 og riðlakeppninni lýkur með leik gegn Ungverjalandi mánudaginn 7. desember klukkan 19:00.
Hópur Íslands:
Markverðir
Hafdís Renötudóttir (Valur)
Sara Sif Helgadóttir (Haukar)
Útileikmenn
Elín Klara Þorkelsdóttir (IK Sävehof)
Lovísa Thompson (Benfica)
Thea Imani Sturludóttir (Craiova)
Sonja Lind Sigsteinsdóttir (Haukar)
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín (Thüringer)
Elín Rósa Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe)
Díana Dögg Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe)
Matthildur Lilja Jónsdóttir (ÍR)
Katrín Tinna Jensdóttir (HH Elite)
Sara Dögg Hjaltadóttir (ÍR)
Rakel Oddný Guðmundsdóttir (Haukar)
Sandra Erlingsdóttir (ÍBV)
Elísa Elíasdóttir (Valur)
Katrín Anna Ásmundsdóttir (Fram)
Lilja Ágústsdóttir (Zwickau)