Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
lotto

Einstæð móðir á sextugsaldri var ein með allar tölur réttar í Lottó síðastliðinn laugardag og vann rúmar 45 milljónir króna. Önnur kona vann tæpar 19 milljónir í Eurojackpot en móðir hennar hafði áður unnið aðalvinning í Lottó.

Þrefaldur pottur var í Lottó að þessu sinni. Samkvæmt tilkynningu frá Íslenskri getspá er konan sem vann rúmlega fimmtug, á nokkur börn og hefur glímt við heilsubrest og tjón á heimili sínu.

„Loksins gerist eitthvað gott!“ er haft eftir henni í tilkynningunni. Meðal þess fyrsta sem hún hyggst gera er að kaupa nýjan bíl.

Konan sem vann tæpar 19 milljónir króna í þriðja vinning í Eurojackpot heimsótti einnig höfuðstöðvar Íslenskrar getspár í vikunni. Þar sagði hún frá því að móðir hennar hefði unnið aðalvinning í Lottó fyrir mörgum árum.

„Nú fæ ég að vinna eins og mamma!“ er haft eftir konunni. Hún er áskrifandi og hyggst meðal annars nýta vinninginn til að aðstoða uppkomin börn sín við framkvæmdir sem þau standa í.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að 40 ár séu liðin frá því að fyrst var spilað í Lottó á Íslandi. Þar segir að starfsfólk Íslenskrar getspár hafi ánægju af því að taka á móti vinningshöfum og að margir hafi heimsótt fyrirtækið á þessum tíma.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.