Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Mannlíf á Keflavíkurflugvelli í brennidepli :: Tuttugu ár liðin frá brottför varnarliðsins
Ásmundur Friðriksson les úr Sögum af Vellinum í Safnahúsinu laugardaginn 31. október klukkan 14.00. Mynd/samsett.

Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður og rithöfundur, les úr nýjustu bók sinni, Sögur af Vellinum, í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum á morgun, laugardag klukkan 14.00. Upplesturinn er hluti af dagskrá Safnahelgarinnar.

Bókin kom út í september síðastliðnum og fjallar um mannlíf á Keflavíkurflugvelli á árunum 1952 til 2006, þegar bandaríska varnarliðið hafði þar aðsetur. Þar segir frá íslenskum starfsmönnum varnarliðsins, samskiptum þeirra við Bandaríkjamenn og áhrifum herstöðvarinnar á samfélagið á Suðurnesjum.

Smyglsögur, vinátta og breyttir lifnaðarhættir

Í bókinni eru viðtöl við tuttugu einstaklinga auk fjölda annarra frásagna. Þar kennir ýmissa grasa, allt frá smyglsögum og skrautlegum uppátækjum til vináttu, fjölskyldutengsla og samfélagsbreytinga. Jafnframt er fjallað um hvernig bandarísk menning, nýjar vörur og breyttir lifnaðarhættir settu svip á íslenskt samfélag.

Bókin kemur út á því ári sem tuttugu ár eru liðin frá brottför bandaríska varnarliðsins árið 2006. Með henni hefur Ásmundur safnað saman frásögnum af fólki og samfélagi sem mótaðist í nábýlinu við herstöðina.

Hefur áður skrifað um Eyjarnar

Ásmundur hefur sent frá sér nokkrar bækur á undanförnum árum. Meðal þeirra eru Strand í gini gígsins, sem fjallar um Surtseyjargosið og mannlífið í Vestmannaeyjum, og ævisögur Sigurðar Friðrikssonar, Didda Frissa, og Edvards Júlíussonar, Edda í Hópsnesi.

Á laugardaginn gefst gestum Safnahelgarinnar tækifæri til að hlýða á hann lesa úr nýjustu bókinni og segja frá mannlífinu á Vellinum.

 


Dagskrá laugardags á Safnahelgi:

Laugardagur 31. október

Kl. 12:00–15:00 – Bókasafn: Hrekkjavökufjör

Safnið tekur á sig hræðilega ásýnd í tilefni hrekkjavökunnar. Villist þú í völundarhúsinu?

Kl. 13:00 – Bókasafn: Sögustund í myrkri

Boðið verður upp á upplestur í myrkri þar sem sögurnar fá að njóta sín í dularfullri stemningu. Þau sem eiga vasaljós mega gjarnan koma með þau.

Kl. 14:00 – Sagnheimar: Bókakynning

Það verður sannkölluð bókmenntaveisla þegar fjórir þekktir rithöfundar koma í heimsókn, kynna nýjustu verk sín og lesa úr bókum sínum:

  • Þorgrímur Þráinsson: Ég kom til að gráta
  • Steindór Ívarsson: Ótti
  • Margrét S. Höskuldsdóttir: Eldur í öskunni leynist
  • Ásmundur Friðriksson: Sögur af vellinum

 

Kl. 18:00–20:00 – Bókasafn: Grikk eða gott

Í tilefni hrekkjavökunnar verður kvöldopnun á bókasafninu og boðið upp á grikk eða gott. Safnið verður skreytt í anda hrekkjavökunnar og tilvalið að koma og skoða herlegheitin.

Nýjustu fréttir

Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.