Sólmyrkvinn hefst kl. 8.37 í fyrramálið

Á morgun, nánar til tekið klukkan 8.37 að morgni, hefst mesti sólmyrkvi sem sést hefur frá Íslandi í 61 ár. Ef veður leyfir verður hann vel sýnilegur úr Vestmannaeyjum sem og á landinu öllu. Sólmyrkvinn 20. mars 2015 er almyrkvi. Ferill almyrkvans liggur aðeins um 70 km austur af suðausturhluta Íslands. Í Færeyjum og á […]

Loðnuvertíð að ljúka -Eyjaskip yfir 100.000 tonnin

�?rátt fyrir djöfulgang í veðrinu hafa loðnuveiðar gengið vel og er Vinnslustöðin að klára sinn kvóta sem er 40.000 tonn. Ísfélagið á eftir milli 10.000 og 20.000 tonn af sínum 80.000 tonna kvóta og Hugin VE tókst að útvega meiri kvóta og er að vinna hrogn á miðunum. Sameiginlegur afli þeirra losar 100.000 tonn. Loðnan, […]

Safnahús: Guðbjörg með erindi í hádeginu og Ásdís opnar sýningu kl. 5

100 ára kosningaafmæli kvenna á Íslandi í Safnahúsi: kosningaafmælisins á margvíslegan hátt á árinu. Listasafnið reið á vaðið í ársbyrjun með sýningarröðinni Konur í listum sem hefur skipulagt sýningar í Einarsstofu fyrstu níu mánuði ársins. Sýningarnar falla undir mismunandi listform en koma allar úr smiðju kvenna. Heilmikill undirbúningur er í Sagnheimum vegna afmælisins. Nýverið barst […]

Breiðholt, Landakirkja og Hóll fá styrki

Húsafriðunarsjóður veitir styrki til viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum. Í ár eru veittir styrkir til þriggja bygginga í Vestmannaeyjum, Landakirkju, Breiðholts og Hóls. Landakirkja fær 600.000 krónur, Breiðholt Vestmannabraut 52 og Hóll Miðstræti 5a fá sinn hvorar 400.000 krónurnar. (meira…)

Leiðrétting – Á við handboltamótin

Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í gær var tekin fyrir ósk ÍBV íþróttafélags um gjaldfrjálsan aðgang að sundi fyrir gesti félagsins á handboltamótum sem haldin eru í Eyjum. Í fundargerð segir að Vestmannaeyjabær leggi þegar til gjaldfrjálsan aðgang í sund fyrir mótsgesti á Shell- og Pæjumóti sem og fyrir leikmenn meistaraflokka karla og kvenna. Sé […]

Amaba Dama og Fm Belfast á �?jóðhátíð 2015

“�?jóðhátíð í Eyjum fer fram 31. júlí – 2.ágúst og dagskráin í ár byrjar með látum – fyrstu tvær hljómsveitirnar sem staðfestar eru til að spila í Dalnum eru FM Belfast og AmabAdamA! FM Belfast er ein allra skemmtilegasta og kröftugasta tónleikasveit landsins og því ljóst að stemningin verður gríðarleg þegar þessi frábæra hljómsveit stígur […]

Mikilvægur leikur hjá unglingaflokki

Í kvöld klukkan 18:30 fer fram hörkuleikur milli ÍBV og ÍR, bæði lið tefla fram sterkum liðum sem mættust síðast í undanúrslitum Coca-Cola bikarsins. Eftir framlengingu í háspennu leik vann ÍBV góðan sigur. Með sigri tryggja Eyjastúlkur sér deildarmeistaratitillinn en þær hafa verið að spila virkilega vel í vetur og hafa unnið 20 leiki í […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.