Af eggjum og öðrum auðlindum

Það má með vissu segja að hér í Eyjum drjúpi smjör af hverju strái. Fjöllin eru full af fuglum og eggjum og sjórinn fullur af fiski (sem reyndar sumir telja að sé orðið einkaeign í dag, en nánar um það síðar).

En í þessari grein ætla ég aðeins að fjalla um eggjatökuna hjá mér í ár ásamt gömlum minningum og svara um leið spurningum sem ég þarf ótrúlega oft að svara.

Fýllinn

Ég hirti mitt fyrsta fýlsegg, minnir mig, 13 ára gamall en ég hafði verið þá í gistingu hjá frænku minni vestur í blokkum í nokkra daga og einn daginn lagði ég leið mína inn í dal og gekk upp með Hánni að vestanverðu og fyrir tilviljun klifraði ég upp á eitt nes sem ég sá þarna og rakst þar á fýl á eggi. Eggið hirti ég og fór með það til frænku minnar sem notaði það til að búa til dýrindis pönnukökur og þar með var ég kominn á bragðið.

Næstu 25 árin á eftir stundaði ég eggjatöku mest megnis í Duftþekju og náði ma. annars stærsta árið að týna yfir 2000 egg. Undanfarin ár hins vegar hef ég farið á önnur fjöll sem ekki eru jafn erfið og t.d. í fyrra safnaði ég ca. 150 eggjum. Í ár hins vegar, kom strákurinn minn með mér í þetta og náðum við að safna liðlega 600 eggjum (á ca. 20 eftir ef einhverjum langar í soðið).

Það er tvennt sem ég er oftast spurður af og svara alltaf á sama hátt. Í fyrra lagi þá hef ég oft verið spurður út í þá skoðun nokkurra fuglafræðinga og náttúrufræðinga um að fýllinn sé farfugl. Þetta er hins vegar al rangt hjá þeim, enda þekkja sjómenn þetta vel, fýllinn hérna á miðunum allt árið. Það eina sem gerist reglulega er að þegar það frystir mjög mikið, þá virðist fýllinn færa sig djúpt suður fyrir Eyjar en kemur svo alltaf aftur um leið og hlýnar.

Hin spurningin er sú: Hversu oft verpir fýllinn?

Nú er það þannig að þar sem menn fara í fýlsegg þar sem hann verpir mjög þétt, þá er ekkert óeðlilegt að menn haldi að hann sé byrjaður að verpa aftur þegar þeir koma í annað eða jafnvel þriðja skiptið, að þá virðist vera annað varp í gangi, en svo er ekki. Ég hef í gegnum árin og áratugina hreinsað það marga staði þar sem fýlnum hefur tekist að fela hreiðrið sitt mjög vel, ég hef aldrei fengið tvisvar egg í sama hreiðrinu, en merkilegt nokkuð voru tvær undantekningar í ár, en ég lenti tvisvar í því, að fá 2 egg í einu í sama hreiðrinu. En svo fattaði ég þetta að fýllinn sem sat á, sat bara á öðru egginu, hitt, sem var í bæði skiptin svolítið minna, var orðið ískalt. Ég ætla mér því að leyfa mér að giska á það, að þarna hafi einhver ungfýll, sem hefur verið kominn alveg í spreng, verpt sínu eggi en verið síðan rekinn í burtu hörðum vængi af eigandanum af hreiðrinu, enda passar fýllinn vel upp á sitt hreiður, en það er greinilegt að fýlnum er að fjölga.

Mávurinn

Ég hef alltaf tekið mávseggin með á þeim svæðum sem ég tíni, en mávurinn byrjar að verpa 10 dögum á undan fýlnum, a.m.k. þeir fyrstu, en ég fór upp í Blátind þann 4. maí, enda er þekkt að mávurinn byrjar að verpa 2. maí. Átti ég von á því að fá 1-2 egg, en fékk 10. Skýringin er að mínu mati gríðarlega gott fæðis framboð við Eyjar, en mávurinn verpir endalaust og það þekki ég nokkuð vel og hann hættir ekki fyrr en hann er kominn með 3 egg í hreiðrið.

Fyrir liðlega 20 árum síðan var ég orðin rosalega leiður á mávapari sem var alltaf með hreiður í klettunum fyrir aftan efsta lundaveiðisætið í Miðkletti og truflaði alveg rosalega lundann og fældi hann í burtu með látum, svo ég ákvað eitt árið að ég skyldi ræna hann bara allt sumarið. Byrjaði strax í maí og svo júní og alveg fram undir 20. júlí, en þá var ég búinn að taka 18 egg frá þessu sama pari. Í byrjun september sá ég svo í sjónaukanum þetta sama par vera að þvælast með 3 unga í klettunum efst í Miðkletti.

Að lokum nokkur orð um lundann

Það hefur verið svolítið um það að mönnum finnst lítið sjást af lunda. Það er eðlilegt, hann á að vera í miðju varpi núna, eða allavega byrjaður að verpa og sést því lítið á meðan, helst að sjá hann seint á kvöldin að viðra sig aðeins. Ungfuglinn hins vegar kemur yfirleitt ekki fyrr en svona í fyrsta lagi í byrjun júlí, þegar hann fer að elta sílisfuglinn upp í fjöllin. Vonandi sjáum við mikið af honum í sumar og mikið af pysju í haust.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.