Myllu og vita vígslur fóru fram í Herjólfsdal (myndir)

Þó ekki verði sett Þjóðhátíð á morgun þá mátti finna fasta liði í Herjólfsdal á fimmtudagskvöldi. Þar fóru fram myllu- og vitavígslur með hefðbundnu sniði þar sem aðstandendur hvors mannvirkis kepptust við það langt umfram efni að ausa eigið mannvirki lofi og lasta á sama tíma nágranna sinn. Jóhann Pétursson forsprakki myllumanna kom meðal annars […]

Er „hundaæði“ á eyjunni?

Fyrir nokkrum dögum var ég að vinna að verkefni á Stórhöfða og blöskraði hversu margir virtu umgengisreglur höfðans að vettugi. Eins og flestir (greinilega ekki allir samt) vita, er Stórhöfði stór varpstaður og er mikil fuglabyggð á höfðanum. Á þessu svæði, og reyndar allt svæðið fyrir sunnan steinstaði, eru hundar bannaðir. Þrátt fyrir það varð […]

Brennunni frestað fram yfir samkomutakmarkanir

Brennan á Fjósakletti verður síðar í sumar eftir að samkomutakmörkunum hefur verið létt að nýju. Haraldur Pálsson framkvæmdarstjóri ÍBV íþróttafélags sagði í samtali við Eyjafréttir að til hafi staðið að tendra bálið annað kvöld og viðræður við yfirvöld verið á þann veg. “Við erum búin að vera í samtali við þau um þetta í dag. Það er okkar mat […]

Opið í skransölunni

Þrátt fyrir að ekki verði haldin Þjóðhátíð í Herjólfsdal um helgina mun ÍBV halda úti skransölunni vinsælu í sjoppunum undir sviðinu. Allur ágóði sölunnar rennur til barna- og unglingastarfs ÍBV. Skransjoppan var opin í gær frá 16.00-18.00 og verður það aftur í dag, fimmtudag, á sama tíma. Opið verður einnig föstudaginn 30. júlí frá 13.00-15.00. […]

Göngum í takt

Ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um að vinna eftir ráðgjöf sóttvarnalæknis er skiljanleg.  Fyrir liggur að börnin okkar eru óbólusett, smit eru í veldisvexti og óvissan um virkni bóluefna er alger.  Ákvarðanataka þarf því að einkennast af yfirvegun, skynsemi og meðalhófi.  Pirringur, dapurleiki og svekkelsi eru eðlilegar tilfinningar almennings en ábyrgir aðilar hvorki geta né mega láta […]

Fyrsta pysjan fundin

Fyrsta lundapysjan er komin til byggða, pysjan fannst í morgun við Hafnareyri. Frá þessu er greint á facebooksíðu Pysjueftirlitsins. Nú getur pysjubjörgunarfólk á öllum aldri farið að gera kassana klára. Stefnt er að því að Pysjueftirlitið verði rafrænt í ár eins og á síðasta ári.   (meira…)

Engir áhorfendur í brekkunni og ekkert hljóð frá sviðinu

ÍBV og Þjóðhátíðarnefnd vilja leiðrétta þann misskilning sem félagið hefur orðið vart við undanfarið. ÍBV og Sena munu nota stóra sviðið í Herjólfsdal fyrir sjónvarpsútsendingu frá Brekkusöng og kvölddagskrá á sunnudagskvöldið til að reyna ná sem best hinni eiginlegu Þjóðhátíðar upplifun í útsendingu, eins og hægt er á þessum tímum. Engir áhorfendur verða í brekkunni og ekkert […]

Kveikt verður í brennunni annað kvöld

Það er óneitanlega sérstakt að fara um Herjólfsdal að morgni fimmtudags fyrir Þjóðhátíð og sjá dalinn í fullum skrúða. Vitinn, Myllan Hofið og brúin allt á sínum stað en engin verður þó Þjóðhátíð í dalnum þessa verslunarmannahelgi. Brennumenn héldu sitt árlega brennuslútt í gærkvöldi þar sem því var fagnað að brennan á Fjósakletti væri fullreyst […]

Húkkaraleikur á Hásteinsvelli

Stórleikur fer fram í dag þegar KFS fær KFG í heimsókn á Hásteinsvelli kl 18.00. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu er Hanni Harði er búinn að lofa mikilli veislu fyrir áhorfendur og ekki er hann þekktur fyrir að svíkja sín loforð. Búist er við um 11 gráðum og logni og því […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.