Guðrún tekur undir hugmyndir Páls

Palli Gudrun Gong Sams

Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hefur sem kunnugt er boðið sig fram til að leiða flokkinn. Guðrún mætti á Sprengisand í gær og ræddi þar stjórnmálin, framboð sitt til formanns og stöðu Sjálfstæðisflokksins. Áður en Guðrún tók sæti á þingi sat hún m.a. í stjórnum lífeyrissjóða. Fyrst í stjórn lífeyrissjóðsins Festu 2012–2014. Svo formaður stjórnar […]

Efnilegir Eyjamenn skrifa undir

Heidmar Alexander Siggi Cr

Eyjamennirnir Sigurður Valur Sigursveinsson, Heiðmar Þór Magnússon og Alexander Örn Friðriksson hafa allir skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild ÍBV sem gildir út keppnistímabilið 2027. Greint er frá samningsgerðinni á vefsíðu ÍBV. Strákarnir hafa allir leikið með yngri flokkum ÍBV upp allan sinn feril og eiga einnig allir systkini sem hafa leikið eða leika […]

64% nýting í fluginu

Flug Ernir Farthegar Jan 2024 Tms Lagf

Í byrjun desember hófst áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Vegagerðin, fyrir hönd ríkisins samdi við Mýflug um flugið, en samkvæmt samningnum greiðir Vegagerðin Mýflugi 691.062 kr. fyrir hvert flug (RVK-VES-RVK). Um er að ræða flug á tímabilinu 1. desember til 28. febrúar og einungis greitt fyrir það tímabil og greiðir Vegagerðin því 35.935.224,- á ári til flugfélagsins. […]

Stuttur og góður túr

Vestmannaey V Landar 20220717 111132

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Birgis Þórs Sverrissonar skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. „Við fengum allan aflann á Höfðanum og stoppuðum þar í einungis 31 klukkustund. Það var kaldafýla allan tímann á meðan við vorum að veiðum en við fengum hins vegar […]

Viska býður upp á kynningar á fyrirtækjum í Eyjum

Viska hefur kynnt nýtt framtak fyrir vorönn 2025 þar sem fyrirtæki í Vestmannaeyjum fá tækifæri til að kynna starfsemi sína. Fundirnir verða haldnir einn fimmtudag í mánuði í hádeginu og eru opnir öllum þeim sem vilja kynnast betur því fjölbreytta fyrirtækjalífi sem Eyjarnar hafa upp á að bjóða, en fjölmörg stór og smá fyrirtæki eru […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.